Sögubók fornmanna sem fráskýrir þeirra ættum og atgjörvi, hreysti og hugprýði, lunderni og limasköpun, vopnfimi og viturleik, manndáð og mörgu fleiru. Að nýju skrifuð og samansöfnuð í eitt af bóndanum Jóhannesi Jónssyni á Smyrlahóli á árunum 1851-52-53-54-55-56-57 (1r).
„Innihald bókarinnar“
„Hér skrifast sagan af Máus jalli“
„Svo vísar í annálum að Karl keisari tók við ríki í Saxlandi …“
„… tók Rafn Hængsson lögsögn hér á Íslandi anno 930.“
„… og endum vér so þessa sögu þann 14da marts 1851.“
„Sagan af Ajax frækna“
„Svo byrjar sögu þessa að Sigurður hefur kóngur heitið …“
„… þá hann var áttatigi og sjö ára og enda so þessi saga af Ajax hinum frækna.“
„Enduð þann 5ta maii 1851 af I.I.S.“
„Sagan af Göngu-Hrólfi“
„Það er upphaf þessarar sögu að Hreggviður hefur kóngur heitið …“
„… en guði eru að þakka allir góðir hlutir og endar svo þessi saga.“
„Enduð þann 18da mars 1853 af I.I.S.“
„Sagan af Eiríki frækna“
„Á ofanverðum dögum Haralds kóngs hins hárfagra …“
„… þótt hann væri fyrr á tímum og lúkum vér svo þessari sögu.“
„Enduð þann 17da október 1854 af I.I.S.“
„Sagan af þeim systkinum Felix og Iðunni“
„Suður í landinu Pólónía bjó einn ríkur borgari …“
„… í lukku og velgengni og endar svo þessa sögu“
„þann 8da nóvembris 1854 af I.I.S.“
„Sagan af Goðleifi prúða“
„Austarlega í landinu Portúgal …“
„… og endar svo þessa sögu af Goðleifi prúða.“
„Endað þann 29da janúar 1855 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Hrólfi kóngi Gautrekssyni“
„Þar hefjum vér eina kátlega frásögu af kóngi þeim …“
„… og lúkum vér svo þessa ágætu sögu af Hrólfi kóngi Gautrekssyni.“
„Enduð þann 13da mars 1855 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Eigli einhenda og Ásmundi berserkjabana“
„Hertryggur hét kóngur, hann réði fyrir Austur-Rússía …“
„… og ekkert sem þar var innanborðs, og endast svo þessi saga.“
„Enduð þann 19da mars 1855 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Fertram og Plató“
„Artus er kóngur nefndur megtugur og stórauðugur …“
„… og skildu svo með kærleika og endar svo þessa sögu af Fertram og Plató.“
„Enduð þann 28da mars 1855 af J. Jónssyni.“
„Saga af Hemingi Áslákssyni“
„Haraldur konungur Sigurðarson stýrði Norvegi …“
„… hann hefur verið mesti afreksmaður og besti drengur og endar svo þessi saga.“
„Enduð þann 22n október 1855 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Án bogsveigir“
„Í þann tíma er fylkiskóngar réðu fyrir Norvegi …“
„… og endar svo sögu af Án bogsveigir. 26ta jan. 1856.“
„Sagan af Ásmundi víking“
„Hringur hefur kóngur heitið …“
„… lifðu lengi og unntust vel til enda. Endar svo þessa sögu.“
„Þann 2n febrúar 1856 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Nikulaus leikara“
„Svo segja sannfróðir menn og meistarar …“
„… fyrir margra hluta sakir og endar svo þessa sögu.“
„Þann 7da febrúar 1856.“
„Hér byrjar söguna af þeim nafnfræga keisara Carólus Magnus hvörsu hann mannlega og herralega barðist fyrir þá kristilegu trú, með þeim tólf jafningjum“
„Fyrir Frakklandi réði einn kóngur sá eð Pipping hét …“
„… fyrir utan allan enda að eilífu amen.“
„Þessi fágæta merkis saga er enduð á Smyrlahóli þann 7da mars 1856 af J. J.S.“
„Saga af Drauma-Jóni“
„Henrik er maður nefndur, jarl að tign …“
„… hann er blessaður um aldir alda.“
„Enduð þann 2n janúar 1857 af J. Jónssyni.“
„Sagan af Flóres og sonum hans“
„Konungur sá réði fyrir Tartaría er Flóres hét …“
„… eður þeim bræðrum sonum hans og lýkur svo þessari sögu.“
„Enduð 22n jan. 1857 af J.J.S.“
„Æfintýr af Þorsteini forvitna“
„Þorsteinn hét maður íslenskur er kom á fund Haralds kóngs Sigurðarsonar …“
„… og lyktar svo hér af Þorsteini forvitna að segja.“
„Þetta allt hér að framan ritað er endað dag 22n janúar 1857 af Jóhannesi Jónssyni á Smyrlahóli.“
Með hendi Jóhannesar Jónssonar á Smyrlahóli, snarhönd.
Bl. 251-254 með óþekktri hendi.
Rauður skrautrammi utan um titilsíðu.
Band frá ca 1857 (190 mm x 153 mm x 67 mm). Skinnband. Tréspjöld klædd brúnu áþrykktu leðri. Spennsla fyrir miðju. Saumað með hamptaumi.
Seðill með kveðju frá Brian Dodsworth til Jóns Samsonarsonar þar sem hann þakkar Jóni fyrir lán á handritinu og gerir athugasemd um Mágus sögu.
Handritið var skrifað á Íslandi 1851-1857.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu 1. október 2014.
ÞS skráði í desember 2018 og febrúar 2019.