„Hugvekja af síðasta vetrardag“
„Hvörr hann situr undir …“
„ … sem aldrei mun enda taka“
„Hugvekja af fyrsta sumardag“
„Befala þú drottni þína vegu …“
„ … sem engin tímanna umbreyting verður framar, amen.“
Blöð 12v-21v eru auð (undanskilið: á blað 13v er skrifað Sveinn Ólafsson á Eystri -Tungum á veskið með réttu og á blaði 13r er hringlaga stimpill þar sem á dökkum fleti eru ljósir stafir: SÓlafsson).
„Ár 1861 uppskrift [. .....]“
Virðist vera kostnaðaryfirlit; alls 119 atriði sem að öllum samanlögðum gefa summuna 328.68. Blöð 24v-25r eru auð.
„Móðurarfur 1840“
Þrjár ær með lömbum, fjárhús og tunnur eru meðal arfshluta.
„Minnisblað, ár 1855, hvörja faðir minn gaf okkur bræðrunum öllum eins í lifandi.“
Meðal þessa eru átta ær með lömbum, veturgamlar ær, kýr, hestar …; minnisblaðinu virðist fram haldið á innanverðri bókarkápu (að aftan). Aftast er laust tvinn, blað 27r er autt (sjá nánar: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Eitt kver + 1 laust tvinn:
Skrifari gæti verið Sveinn Ólafsson (sbr. blöð 13v og 28v (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur). Sveinn var faðir Einars Ólafs Sveinssonar og er fimmtán ára 1876 (sbr. Manntalsvef Þjóðskjalasafns Íslands http://www.manntal.is/ ). Líklegra má telja að faðir hans skrifi handritið þar sem þar segir frá móðurarfi 1840 og í bókinni er minnisblað frá 1855 (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur). Skriftin á flestum viðbótunum er þó að mörgu leyti lík þeirri sem er á efni bókarinnar svo hér verður ekki fullyrt um þetta.
Á lausa tvinninu, þ.e. á blöðum 27v-28r er nánari tilvísun í fyrrnefnt veski. Blöðin hafa verið innsigluð með rauðu innsigli sem nú er rofið. Þar koma fram eftirfarandi upplýsingar:
Einungis eitt kver og tvinn - laus í pappakápu.
Handritið liggur í öskju með SÁM 116b-f.
SÁM 116a-f eru komin á Stofnun Árna Magnússonar úr búi Einars Ólafs Sveinssonar.