Rímur af Flóresi og sonum hans, orktar af Guðmundi Jónssyni á Grenivík í Grímsey.
„1ta ríma, ferskeytt“
„Hleiðólfs læt ég hlunna jór …“
„… og allra þjóða smiður.“
Nítján rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 140-141).
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-172; blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-86.
Ellefu kver.
Fyrirsögn og fyrsta lína rímu er með stærra letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 10r og 48v).
Band (170 mm x 100 mm x 14 mm): Pappaspjöld eru klædd gul- og grænyrjóttum marmarapappír; grænn líndúkur er á kili, límdur aðeins inn á spjaldapappírinn; kæðning á spjaldhornum er horfin.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 98, 99, 100, 101, 102, 103, 105 og 106.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á síðari hluta nítjándu aldar (Jón Jóhannesson, Hleiðrargarði dó 1896 (sbr. http://www.herak.is/static/files/Skjalaskrar/H%20skrar/H-11.pdf)) .
VH skráði í september 2010.