Rímur af Hjaðningavígum eður af Högna og Héðinn, orktar af Hjálmari Jónssyni og endurkveðnar af hinum, skrifaðar eftir eiginhandriti skáldsins af Jónasi Jónssyni, 1867. Alexander og Loðvík
Tvær handskrifaðar rímur, tvö sjálfstæð hefti sem bundin eru inn í bók með prentuðum rímnaheftum.
Prentuðu rímurnar eru Rímur af Þorsteini uxafæti (f. framan handskrifuðu heftin); Rímur af Flóres og Blanzeflúr og Rímur af Freyvald (f. aftan þau).Blöð eru nokkuð notkunarnúin.
Band (170 mm x 110 mm x 22 mm). Pappaspjöld eru klædd yrjóttum pappír. Dökkrauður dúkur er á kili og hornum. Handskrifuðu rímurnar eru tvö sjálfstæð hefti (blöð 1-33 + 34-66) bundin inn í bók með prentuðum rímnaheftum. Framan við eru Rímur af Þorsteini uxafæti … prentaðar hjá Louis Klein., 1858 og aftan við eru Rímur af Flóres og Blanzeflúr prentaðar á Akureyri 1858.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 91, 92, 93, 94, 95, og 97.
Handritið var skrifað á Íslandi á síðari hluta nítjándu aldar.
VH skráði í september 2010.
„1. ríma, ferskeytt“
„Langar vökur leiðast mér …“
„… grunnt að þagnar leiði. Hjálmar Jónsson.“
Sex rímur; hndr.: Lbs. 453 8vo (ehndr. yngri gerð), Lbs. 977 8vo (ehndr. eldri gerð) (sjá nánar Rímnatal 1966: 228).
Fjögur kver.
Með hendi Jónasar Jónssonar; í fyrri hlutanum er skriftin sprettskrift en í þeim seinni snarhönd.
Titilsíða er fallega upp sett með flúruðum og fylltum upphafsstöfum.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru m.a. með stærra og settara letri en er á meginmáli (sjá t.d. blöð 1v og 24v).
Handritið var skrifað á Íslandi 1867, sbr. titilsíðu.
„Fyrsta ríma“
„Vel sé þeim með góðlátt geð …“
„… þá víkur erfiðið, öðlist ríkan himnafrið. Endir.“
Átta rímur rímur; hndr.: Lbs. 1684 4to, Lbs. 2160 4to, Lbs. 540 8vo; JS 579 4to (sjá nánar Rímnatal 1966: 17).
Fjögur kver + innskotsblað.
Skrifari óþekktur; snarhönd.
Fyrirsagnir og á stundum fyrsta lína rímu eru með stærra og settara letri en er á meginmáli (sjá t.d. blað 51r ).
Undir fyrirsögnum og þar sem skil virðast vera í efni koma fyrir tákn sem líkjast u, yfirleitt endurtekin fjórum sinnum (sjá t.d. sjá t.d. blöð 51r-v ).
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á seinni hluta nítjándu aldar.