Rímur af Þórði hreðu, orktar anno 1820, af Sigurði Breiðfjörð á Skutulsfjarðareyri. Svo að það viti svimar dróttir, sem sönginn ljóða mega sjá, maddama Guðrún Magnúsdóttir, mærðina af Þórði Hræðu á, [drotti]nn(?) bið eg dugi þær, til [dægra]styttingar fjær og nær. S.G. Breiðfjörð.
„Fyrsta ríma, frá Þórði og bræðrum hans“
„Blindviðs fram á borðið kút …“
„… til Mornar heiðar orma.“
„Naf. 26. janúar 1880, M.. ýurdrun (M .. Gurdrun (?))“
Skrifaraklausan er á blaði 46v. Rifnað hefur af blaði 41 þannig að texti fimm síðustu lína blaðsins hefur skerts. Tíu rímur.
Blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-46.
Sex kver.
Rifnað hefur af blaði 41 þannig að texti fimm síðustu lína blaðsins hefur skerts.
Með einni hendi, skrifari ókunnur. Sprettskrift.
Fyrirsögn og á stundum fyrsta lína rímu er með stærra letri en yfirleitt er á meginmáli (sjá t.d. blöð 20r og 29r).
Band (182 mm x 115 mm x 8 mm) er líklega frá síðari hluta 18. aldar. Kverin eru saumuð og utanum þau er þunn pappírskápa gerð úr tveimur samlímdum pappírsörkum þannig að spjaldapappír með marmaramynstri er límdur á bláa skrifpappírsörk.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 91, 92, 93, 94, 96 og 97.
Handritið var skrifað á Íslandi, hugsanlega á árunum 1877-1880, sbr. dagsetingu á blaði 46v og ártal á bókarkápu.
VH skráði í september 2010.