Skráningarfærsla handrits

SÁM 68

Biskupasögur Jóns prófasts Halldórssonar í Hítardal ; Ísland, 1750-1760

Athugasemd
Aðeins sögur Skálholtsbiskupa.
Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-221v)
Sögur Skálholtsbiskupa
1.1 (1r-10v)
Formáli
Upphaf

Þó hinum stoltu Pharizæis …

Niðurlag

… og því samankomið í eitt bindi.

Athugasemd

Formálinn er saga fyrstu kristni á Íslandi með skírskotun í Heilaga Ritningu og íslensk fornrit jafnt sem Arngrím lærða neðanmáls.

Efnisorð
1.2 (11r-v)
Skrá yfir kaþólska biskupa í Skálholti
Titill í handriti

Röð eða registur þeirra pápísku biskupanna í Skálhol[ti]

Upphaf

Ísleifur Gissurarson …

Niðurlag

… Ögmundur Pálsson.

Athugasemd

Getið er um fæðingarár biskupanna, hvers lenskir þeir voru eða hvaðan af landinu, vígsluár, fjölda ára í embætti, aldur og andlát eða burthvarf af biskupsstól.

Efnisorð
1.3 (11v)
Skrá yfir lútherska biskupa í Skálholti
Titill í handriti

Registur hinna evangelísku biskupa í Skálholti

Upphaf

Gissur Einarsson …

Niðurlag

… Jón Þorkelsson Vídalín.

Athugasemd

Getið er um fæðingarár biskupanna, hvers lenskir þeir voru eða hvaðan af landinu, vígsluár, fjölda ára í embætti, aldur og andlát eða burthvarf af biskupsstól.

Efnisorð
1.4 (11v-12v)
Skrá yfir biskupslaus ár á Íslandi
Titill í handriti

Nær og hvað oft hér hafi verið biskupslaust í Íslandi síðan Ísleifur varð biskup

Upphaf

Anno 1008 eftir dauða Ísleifs …

Niðurlag

… biskupslaust varð allt til þessa.

Efnisorð
1.5 (12v-13r)
Skrá yfir hvenær þrír eða fleiri biskupar hafa verið samtímis í landinu
Titill í handriti

Þrír biskupar og fleiri hér í senn á Íslandi

Upphaf

Anno 1188 þrír biskupar á Íslandi …

Niðurlag

… og að 2 biskupar væri hér ekki eins.

Efnisorð
1.6 (14r-220v)
Sögur Skálholtsbiskupa á kaþólskri tíð
Upphaf

Ísleifur biskup var kominn af hinum göfugustu landnámsmönnum …

Niðurlag

… svo hún hefur andast anno 1561.

Athugasemd

29 kaflar. Kaflafyrirsagnir eru nöfn viðkomandi biskups.

Efnisorð
2 (222r-411r)
Sögur Skálholtsbiskupa á lútherskri tíð
Upphaf

Síðan Ísland byggðist …

Niðurlag

… samt lifir mannorðið lengst.

Notaskrá

Biskupasögur Jóns prófasts Halldórssonar í Hítardal I 1903-1910

Athugasemd

Hefst á formála. Þá eru 8 kaflar. Kaflafyrirsagnir eru nöfn viðkomandi biskups.

Efnisorð
3 (413r-420v)
Prédikun á 4. sunnudag eftir trinitatis
Titill í handriti

Concio Episcopi Mag: Vídalíni Dominica iv. post trinitatis De jure. Exegesis.

Upphaf

Næst heilögu Guðs orði …

Niðurlag

… fyrir þína forþénustu. Amen.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 420 + i blöð (190 +/- 1 mm x 153 +/- 1 mm). Auð blöð: 13v, 221r-v, 411v-412v.
Tölusetning blaða
Handritið var blaðsíðumerkt 1-26, 1-412 og 1-373, en víða hafa tölurnar skorist af við bókband, einkum í fyrstu tveimur hlutunum. Bl. 222-224 og 413-420 eru ómerkt. Auð bl. eru ómerkt.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165-175 mm x 135-140 mm.
  • Línufjöldi er ca 24-27.
  • Síðutitlar.

Ástand

  • Í skurði við bókband hefur iðulega skorist ofan af síðutitlum og blaðsíðutölum.
  • Rifnað hefur af efra horni ytra megin á fremstu 5 blöðunum þannig að texti hefur skerst.
  • Blöð eru morkin á jöðrum, einkum fremst og aftast, og hafa blöð verið styrkt með pappírsræmum.
  • Leturflötur hefur dökknað. Vatnsblettur á bl. 32r-33v.

Skrifarar og skrift

Bl. 1r-115r og 126r-133v með hendi Vigfúsar Jónssonar, fljótaskrift.

Bl. 115v-126r með óþekktri hendi, fljótaskrift.

Bl. 134r-420v með óþekktri hendi, fljótaskrift. Bl. 332v-336v með sprettskrift.

Skreytingar

Fyrirsagnir eru blekfylltar og sums staðar dálítið flúraðar.

Mannsandlit teiknað í staf í fyrirsögn á bl. 14r, 62v, 136r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Víða eru efnisatriði skrifuð utanmáls í fyrsta hluta ritsins (að bl. 145v) með hendi Magnúsar Ketilssonar.
Band

Band frá ca 1750-1760 (197 mm x 152 mm x 75 mm). Tréspjöld klædd skinni. Einfalt flúr á kápu og kili. Blá saurblöð fremst og aftast. Spjaldblöð úr sama pappír.

Fylgigögn

  • Ex libris límdur á fremra spjaldblað með nafninu Magnús Kjaran.
  • Gjafabréf dagsett 1. desember 2000 undirritað af Sigríði Kjaran og Sigurjóni Sigurðssyni fylgir SÁM 68-70.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1750-1760. Það mun vera eitt helsta handrit biskupasagnanna og standa nærri frumritinu um margt (sbr. Jón Þorkelsson 1903-1910:xxii).
Ferill
Á fremra saurbl. stendur: Steinúlfur Grímsson þessi bók keypt eftir sýslum. J. Thoroddsen á Leirá. Innan á fremri kápu efst fyrir miðju stendur nafnið A. Thorsteinss. landfógeti. GÁG gískar á að Magnús Ketilsson hafi eignast handritið að biskupasögunum eftir séra Vigfús Jónsson í Hítardal sem var sonur höfundar. Síðar eignaðist Jón Thoroddsen sýslumaður handritið.
Aðföng
Hjónin Sigríður Kjaran og Sigurjón Sigurðsson afhentu Stofnun Árna Magnússonar handritið 1. desember 2000.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 25. maí - 2. júní 2010 (Stuðst var við greinargerð frá GÁG).

Lýsigögn