Efnið er skrifað í glósubók, á miða og laus blöð. Pappakápa heldur utan um efnið. Á henni framanverðri stendur: Handrit sem Árni Helgason stöðvarstjóri í Stykkishólmi afhenti mér 1971. Bók og blöð eru að sögn Árna með hendi Jóns Ólafssonar frá Langey. Vísur ortar af Jóni sjálfum. J.S.
Meðal efnis eru vísur um draum Hákonar Einarsson, Flatey 1913: Hringagefnir hlýði á … (26 erindi (1r-3v); lýsing á kjörum höfundar: Fyrtur auði á ævileið … (15v); Formannavísur: Sels á grundu sókndjarfur … (17r) og fjöldi lausavísna. Blöð 4r-13v eru auð.
Meðal efnis eru lausavísur, sendibréf frá Jóhannesi Jónssyni, 5. apríl 1951, miðar með útreikningum og tvær kvittanir frá 1952; önnur fyrir árgjald hjá Slysavarnarfélagi Íslands. Miðarnir fylgja glósubókinni.
Meðal efnis eru lausavísur skrifaðar á bréfpoka (sjá blað 46), umslög og umslagsbúta (sjá t.d. blöð 47 og 56), kvittun fyrir áksrift 1949 á tímaritinu Ægi (sjá blað 59) og kvittun Sparisjóðs Stykkishólms fyrir greiðslu afborgunar af skuldabréfi frá 19. apríl 1941 Efnið er sér í hvítu umslagi sem merkt er: Stofnun Árna Magnússonar.
Meðal efnis eru lausavísur skrifaðar á bréfsefnisblöð (sjá blað 61-63), umslög og umslagsbúta (sjá t.d. blöð 70 og 82) og umbúðarpappír (sjá blað 68). Þarna er til dæmis að finna bænir í bundnu máli: Er framundan aðeins neyð … (sjá blað 62) og bænir eru einnig á blaði 84 Náð þína drottinn núna í nauðum … (3. erindi), Heilagi himna drottinn … o.fl.; kvæði sem kveðið var þegar höfundur frétti lát Björns Guðfinnssonar: Íslenskunnar vera vígin …; vísa kveðin um gengisfallið: Strarfs nú fækka stundirnar, / stöðugt lækka tekjurnar …; formannavísur: Ötull viður aflafar … (sjá blað 88), sendibréf til góðs kunningja5. mars 1948 og Endir á draumi Hákonar Einarssonar skrifaður eftir minni: Helst það særir hyggju bú /hjálp er ei fær að gjalda …(sjá blað 93) Efnið er sér í brúnu umslagi umslagi sem merkt er: Stofnun Árna Magnússonar.
Pappakápa heldur utan um efnið. Á henni framanverðri stendur: Frá Árna Helgasyni stöðvarstjóra í Stykkishólmi, afhent 1971. Úr dánarbúi Þorvaldar Jóhannssonar skipstjóra og skósmíðameistara. J.S.
„Sigurður Jónsson sýslumaður Snæfellsness og Hnappadalssýslu kunngjörir: …“
Bréfið er dagssett í Stykkishólmi þann 11. mars 1885 Á bréfinu kemur fram að það hefur kostað handhafann tvær krónur. Bréfið er tvíblöðungur; einungis er ritað á rekto-hlið fyrra blaðsins; blöð 94v-95v eru auð.
„Herra skósmíðameistari m/m Þorvaldur Jóhannsson, Stykkishólmi“
„Þú ert ennþá eins og forðum …“
„Með alúðarþökk fyrir dýrt kveðið ljóð frá gömlum Hólmara.“
(Skrifaraklausan er á blaði 96v).
„Til Þorvaldar Jóhannssonar skipherra, á afmælisdegi hans 31. desember 1918“
„Landið á því láni að fagna …“
„ … og kjarkinn sem þú fékkst í arf.“
„Frá nokkrum vildarvinum.“
Með hendi Óskars Clausen. (Skrifaraklausan er á blaði 97r). Kvæðið er skrifað á tvíblöðung; einungis er ritað á rekto-hlið fyrra blaðsins; blöð 97v-98v eru auð.
„Sextíu ára afmæliskveðja til hins góðkunna, fyrrum skipherra Þorvaldar Jóhannssonar, Stykkishólmi. Kveðið undir ljúfum lögum og dýrum háttum af gömlum háseta.“
„Þorvaldur allar aldir …“
„ … gjaldi lýðir Þorvaldi.“
„Frá nokkrum vildarvinum.“
Neðanmáls stendur skrifað með blýanti: Talið eftir Gest Guðmundsson, bókhaldara í Stykkishólmi.
„Ég Sesselja Einarsdóttir, Stykkishólmi ræð hér með dóttur mína Elínborgu Kristmundsdóttur, …“
Bréfið er dagsett 3. maí 1920 Elínborg er ráðin til Lúthers Jónssonar í Klettholti og vitundarvottar eru Pétur O. Lárusson og Bjarni Magnússon.
Pappakápa heldur utan um efnið. Á henni framanverðri stendur: Frá Árna Helgasyni stöðvarstjóra í Stykkishólmi, afhent 1971 J.S.
„Vísur um bændur í Staðarsveit 1921“
Blað 106v er autt.
„Út á bláa boðnar lá …“
„… austan úr Huldufjöllum.“
Fjörutíu erindi.
„Til Staðsveitinga“
„Senn kveð ég þig sveitin fríða …“
„… auðnu sólin heit.“
Fimm erindi.
„Miðablöð yfir Bjarneyjarmið“
Blað 107 er miði með athugasemdum Árna Helgasonar í Stykkishólmi og Jóns Samsonarsonar. Þar segir að Aðalsteinn Páll Brynjólfsson í Rúfeyjum (Dalamenn II: 287) hafi skrifað blöðin eftir frásögn Eyjólfs Jónssonar, Rófubúð í Bjarneyjum.
Pappír
Nokkrir skrifarar, m.a. Jón Ólafsson frá Langey og Aðalsteinn Páll Brynjólfsson frá Rúfeyjum. Skriftin er snarhönd.
Óbundið. Þrjár pappakápur eru um blöðin og eru þær í pappírsumslagi með hörðum spjöldum og reimum.
Efnið er skrifað á Íslandi, líklega að mestu leyti á seinustu áratugum nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu.
Þrjár möppur afhentar Jóni Samsonarsyni af Árna Helgasyni í Stykkishólmi 1971.
VH frumskráði handritið 11.-15. september 2008, lagfærði og bætti við í september 2010
Jón Samsonarson skráði ca 1970. (Sjá vélritaða handritaskrá yfir SÁM-handrit sem varðveitt er á handritasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum).