Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 90 g fol.

Tíðsfordríf Jóns lærða Guðmundssonar, 1759-1799

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

1 (1r-37v)
Tíðsfordríf Jóns lærða Guðmundssonar
Titill í handriti

Tíðs fordríf eður Lítil annálskver. Sitt af hverju til sýnis viljann að birta til samans teiknað af mér Jóni Guðmundssyni ætatis. 70. anno domini 1644.

Vensl

Uppskrift eftir AM 727 II 4to, að hluta, sem er jafnvel talið að hafa verið skrifað af Jóni Guðmundssyni, lærða, árið 1644.

Upphaf

Virðulegum heiðurs herra meistara Brynjólfi Sveinssyni, biskupi að Skálholti, ...

Niðurlag

... Kuggur. Fartíður og liða.

2 (37v)
Styr, Jon, Stíg
Titill í handriti

Vísa Þorleifs Þórðarsonar, 40 mannanöfn

Upphaf

Styr, Jon, Stíg ...

Niðurlag

... Garð, Snjólf, Bárð, Hrólf, Varða.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír. Vatnsmerki.
Blaðfjöldi
38 blöð (333 mm x 212 mm). Bl. 38r-v autt.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking, á efri spássíu, 1-74.

Kveraskipan

Fimm kver:

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24, 4tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 33-38, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 222-224 mm x 110-114 mm.
  • Línufjöldi er 27-28, nema síðasta síðan, 37v, sem hefur 18 línur.
  • Leturflötur afmarkaður með línum dregnum með þurroddi.
  • Ytri spássía (nær jaðri) er mun breiðari en innri spássía (við kjöl).

Ástand

Blöð aðeins gulnuð og snjáð á blaðjöðrum.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, ein hönd, fljótaskrift með kansellíbrotaskrift í undirfyrirsögnum og í upphafi kafla, nöfn og staðir með snarhönd.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á spássíu á bl. 1r stendur: Varia de Rebus Naturalibus præsertim lithologius auctore Johanne Gudmundi cognomine Docto. (Ýmis verk um náttúruleg efni, einkum steinfræði, eftir Jóhannes Guðmundi, kenndan doktor.)
  • Á spássíu á bl. 6r stendur: Það hér og síðan stendur millum tveggja strika, hefur Þormóður Torfason með eigin hendi teiknað á spatiu í sínu exemplare, sem þetta er skrifað eftir.
  • Á fremra spjaldi stendur: Exscript e Ms Arn. Magn No 727, 4to, þar er að auki safnmark.
Band

Sennilega upprunalegt band frá seinni hluta 18. aldar (334 mm x 212 mm x 7 mm).

Bókaspjald úr pappa með rauðum pappír límdum yfir. Kjölur lítillega upphleyptur á uppistöðum.

Handritið er í nýlegri öskju (338 mm x 220 mm x 17 mm).

Límmiði framan á öskju með safnmarki.

Fylgigögn

Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Haandskr. Afd. | Ny kgl. | saml. | 90 g | fol., liggur laus í öskjunni.

Uppruni og ferill

Uppruni
  • Handritið er tímasett til síðari hluta 18. aldar í Katalog Kålunds, nr. 162.
  • Það er skrifað eftir handritinu AM 727 II 4to (Tídfordrif), en aðeins hluti af því.
  • Einar G. Pétursson telur það hugsanlega hafa verið skrifað fyrir P.F. Suhm, dansks sagnafræðings (óbirt rit Einars G. Péturssonar).
Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritnu 21. ágúst 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG uppfærði skráningu 8. september 2023 og 8. janúar 2024.

BS aðlagaði kóðann samkvæmt TEI P5 2. maí 2023.

AM skráði handritið 27. apríl 2023.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 87.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn