Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 4433 II 8vo

Ljóðakver ; Ísland, 1855-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Lausavísa
Titill í handriti

Vísa dróttkveðin

Upphaf

Greiði þér gæfu leiðir …

Athugasemd

1 erindi.

Efnisorð
2 (1r)
Guð alvaldur geymi þig frá pínu …
Upphaf

Guð alvaldur geymi þig frá pínu …

Efnisorð
3 (1v)
Vísur úr bréfi
Titill í handriti

Vísur úr bréfi

Upphaf

Hani þundar þýtur minn …

Efnisorð
4 (2r-2v)
Gilsfjörður
Titill í handriti

Gilsfjörður

Upphaf

Heimsunaðs-dýrðar sjón hlær móti augum …

Athugasemd

6 erindi.

5 (2v-3v)
Dalvísur
Titill í handriti

Dalvísur

Upphaf

Bröttum hlíðum búinn dalur …

Athugasemd

8 erindi.

6 (3v)
Kosningavísa
Titill í handriti

Kosningavísa

Upphaf

Upp upp kjósið hann Pétur …

Efnisorð
7 (4r)
Tárið
Titill í handriti

Tárið

Upphaf

Þú sæla heimsins svalalind …

Athugasemd

3 erindi.

8 (4v-5v)
Hin saklausa gleði
Titill í handriti

Hin saklausa gleði …

Upphaf

Hve indæl, fögur og ástarblíð …

Athugasemd

5 erindi.

Erindin eru númeruð og á eftir kvæðinu stendur talan 6 án þess að nokkurt erindi fari á eftir henni.

9 (5v-6v)
Minni Íslands
Titill í handriti

Minni Íslands

Upphaf

Feðra vorra fósturláð …

Athugasemd

4 erindi.

10 (6v-7r)
Vetrardagurinn fyrsti 1867
Titill í handriti

Vetrardagurinn fyrsti 1867

Upphaf

Nú blæs of hauður bitrum norðan gjósti …

Athugasemd

3 erindi.

11 (7r-8r)
Heimkoma
Titill í handriti

Heimkoma

Upphaf

Stígur myrkur á grund, hnígur miðsvetrar-sól …

Athugasemd

10 erindi.

12 (8v)
Til næturinnar
Titill í handriti

Til næturinnar

Upphaf

Þú vetrarnótt með volegt storma brak …

Athugasemd

2 erindi.

Undir kvæðinu stendur P.

13 (9r)
í lausnarans himin
Upphaf

… í lausnarans himin …

Niðurlag

… breiddi þín broshýra gleði …

Athugasemd

Brot. Vantar framan af. Vantar aftan af.

14 (9v-11r)
Endurminningin er svo glögg
Titill í handriti

Guðnýjar sálmur

Upphaf

Endurminningin er svo glögg …

Athugasemd

8 erindi af 11.

15 (11r-12r)
Móðurkveðja
Titill í handriti

Móðurkveðja

Upphaf

Eg vef þig nú með veikri hönd …

Athugasemd

10 erindi af 11.

16 (12r-13v)
Erfiljóð um Halldóru Þorsteinsdóttir
Titill í handriti

Halldóra Þorsteinsdóttir

Upphaf

Hve oft af himni helga morgunsól …

Athugasemd

7 erindi.

Undir kvæðinu stendur B Gröndal

17 (13v-14v)
Erfiljóð um Friðrik Hildibrand (Hildebrand) kaupmann á Hólanesi á Skagaströnd
Titill í handriti

Erfiljóð eftir Hillibrand á Skagaströnd

Upphaf

Maður einn forkunnarfagur í friði …

Athugasemd

15 erindi.

Hans Natansson sagður höfundur en undir kvæðinu stendur H. Natansson.

18 (14v)
Lausavísur
Upphaf

Þig mín augu aftur sjá …

Efnisorð
19 (15r-17r)
Stafrófsvísur
Titill í handriti

Stafrófsvísur

Upphaf

Allra best er unan sú …

Athugasemd

26 erindi.

20 (17r)
Vísa
Upphaf

Und Jesú opin, í nótt mín skjaldborg sé …

Efnisorð
21 (17v-19r)
Hallgrímur Pétursson
Titill í handriti

Hallgrímur Pétursson (á 200. andláts afmæli hans 27. okt. 1874)

Upphaf

Atburð sé ég anda mínum nær …

Athugasemd

Ekki hefur verið lokið við að skrifa upp kvæðið, af 18 erindum þess vantar 2 síðustu erindin og hluta af þriðja síðasta erindinu.

22 (20r-21r)
Vísur
Titill í handriti

Ortar af Eyjólfi Péturssyni

Upphaf

Eftirlætis ununin …

Athugasemd

16 erindi.

Nafn höfundar er fólgið í fyrsta staf hvers erindis.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
21 blað (170 mm x 105 mm). Auð blöð: 19v, 21v (utan síðar skrifaðra nafna).
Tölusetning blaða
Blöðin voru blaðmerkt við talningu.
Umbrot

Einn dálkur.

Leturflötur er 140-160 mm x 90-100 mm.

Línufjöldi 16-23.

Ástand
Af blaði 9 er aðeins varðveittur neðsti þriðjungurinn.
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Á blaði 21v eru nöfnin Gunnar Ingvarsson Ásgeirsá í Víðidal og Sigþrúður Guðmundsdóttir frá Hóli við Reykjavík skrifuð með annarri hendi og fjólubláu bleki.
Band

Tvö óinnbundin hefti.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1855-1900.
Ferill

Á blaði 21v eru rituð með annarri hendi og öðru bleki (bláu) nöfnin Gunnar Ingvarsson Ásgeirsá í Víðidal og Sigþrúður Guðmundsdóttir frá Hól við Reykjavík.

Oddný Ingvarsdóttir fékk handritið frá föðurbróður sínum, Gunnari Ingvarssyni í Laugardalshólum í Laugardal (d. 1934), en kona hans var Steinvör Eggertsdóttir frá Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, dóttir Eggerts Jónssonar á Kleifum, og frá henni er handritið komið.

Aðföng
Gjöf 10. ágúst 1983 frá Oddnýju Ingvarsdóttur, Laugavegi 98 í Reykjavík, um hendur Skúla Helgasonar fræðimanns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Arnheiður Steinþórsdóttir jók við skráningu 25. ágúst 2020 ; Eiríkur Þormóðsson nýskráði 31. ágúst 2010

Lýsigögn