„Rímur af Barndómi Jesu Krists sem og kallast Maríurímur orktar 1654 af séra Guðmundi Erlendssyni, presti á Felli í Sléttuhlíð í Hegranesþingi.“
„Ei mun gott að Austra kyr / uppi ferjan standi …“
10 rímur
Pappír.
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur
Aftan við rímurnar kemur eftirfarandi fram: „Uppskrifaðar á Höfða í Dýrafirði af S[ighvati] G[rímssyni] B[orgfirðingi] fyrir Guðhrædda Heiðurskvinnu Kristjönu Þorsteinsdóttur á Gemlufalli, í febrúarmánuði 1882“ (bls. 128).
Á fremra skjólblaði v undir versi skrifuðu með blýanti, stendur dagsetningin 5. og 31. desember 1921, Selabóli í Önundarfirði.
Lbs 4074-4075 8vo, keypt 16. október 1974.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 13. ágúst 2020.
Handritaskrá, 4. aukabindi, bls. 252.