„Nytsöm sálma- og bænabók innihaldandi fæðingrsálma prófasts séra Hjörleifs Þórðarsonar á Valþjófsstað, písla stundaglas séra Bjarna Gissurarsonar í Þingmúla, Hvítasunnusöng séra Ingimundar Gunnarssonar í Gaulverjabæ ásamt vikubænum dr. Jóhanns Jakobssonar Hvalsöes með mörgu fleiru.“
Höfundar eru fleiri, sjá skrá yfir Handritaskrá 4. aukabindi, bls. 244.
Pappír.
Þrúður Ólafsdóttir Briem átti handritið og hefur skrifað á fremra spjaldblað: „Agnes Ingimundardóttir frá Rofabæ gaf mér þessa bók. Stefán Hannesson á Hnausum gaf henni bókina. Að sögn Eyjólfs Eyjólfssonar bónda á Hnausum er bókin skrifuð af séra Jóni köggli. Sá Jón var faðir séra Jóns, föður Helgu á Hnausum. Bókin er gefin mér mánudaginn 5. ágúst 1940.“ Helga á Hnausum var langamma Þrúðar.
Afhent til varðveislu 10. maí 1974 af Helgu Einarsdóttur Álfhólsvegi 115 í Kópavogi.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 12. ágúst 2020.
Handritaskrá, 4. aukabindi, bls. 244.