Meðal efnis: Vinavísur eftir Björn Jónsson á Skarðsá og Vinaspegill eftir Guðmund Bergþórsson. Enn fremur: Agnesarkvæði, Eitt andlegt kvæði, Greifakonan spanska, Kvæði af ranglátum herramanni og ráðvöndum þénara, Veronikukvæði og Vísur. Aftast eru kvæðin Lórelei og Lilja og ævintýri.
Pappír.
Óþekktur skrifari
Með liggur á lausum blöðum kvæðið Hafvilla, eftirmæli um Ragnhildi Skúladóttur eftir Jón Eiríksson, upphaf rímna af Auðuni vestfirska eftir Jón Hjaltason í Ármúla á Langadalsströnd og nafnspjald Skúla Thoroddsen sýslumanns; enn fremur eitt sendibréf til Theodóru Thoroddsen frá dóttur hennar, Katrínu Thoroddsen.
Lbs 4039-4041 8vo. Gjöf 22. maí 1973 frá Sigurði Thoroddsen verkfræðingi.
Skráning Gríms M. Helgasonar og Ögmundar Helgasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 4. aukabindi, bls. 241.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 16. október 2017.