Skráningarfærsla handrits

Lbs 3378 8vo

Ljóðmæli Sigurðar Breiðfjörð ; Ísland, 1850-1899

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-26r)
Rímur af Friðriki landsstjórnara
Titill í handriti

Rímur af Friðrik landsjórnara eftir Sigurð Breiðfjörð 1838

Upphaf

Herkju frosti hefur í / heilinn á mér staðið …

Athugasemd

Fimm rímur.

Efnisorð
2 (26r-29v)
Ríma af Alkoni Skeggjabróður
Titill í handriti

Ríma af Alkoni Skeggjabróður eftir Sig. Breiðfjörð, eftir bón þegar hann var gestkomandi í Efranesi

Upphaf

Komdu hingað, kvæðanorn / krafta veika stoða …

Athugasemd

46 erindi.

Efnisorð
3 (29v-30v)
Níðingsafdrif
Titill í handriti

Níðingsafdrif, ort af Sig. Breiðfjörð

Athugasemd

Átta erindi.

4 (33r-36v)
Ljóðabréf
Titill í handriti

Ljóðabréf eftir S. Breiðfjörð

Upphaf

Yður finna, auðarhlín / að mér fýsnir sækja …

Athugasemd

48 erindi.

Efnisorð
5 (37r-49v)
Lausavísur

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 53 blöð (165 mm x 97 mm). Auðar síður: 31r-32v, 50r-53v.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

Helgi Sigurðsson

Lárus Helgason

Band

Innbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á síðari hluta 19. aldar.
Aðföng

Lbs 3623-3630 4to, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð, sendi Háskóla Íslands handritin 1952, en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar. Sum handritin eru með nafni séra Helga Sigurðssonar á Melum, en handrit úr fórum hans voru send börnum hans vestur um haf að honum látnum 1889.

Sbr. Lbs 3623-3630 4to.

Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 3. aukabindi, bls. 128-129.

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 16. ágúst 2017.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn