Skráningarfærsla handrits

Lbs 3372 8vo

Rímur ; Ísland, 1837

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Rímur af Ármanni
Titill í handriti

Rímur af Ármanni, kveðnar af Magnúsi Jónssyni

Vensl

Blaðsíðutal í handritinu er 57-216. Upphaflegur fyrri hluti handritsins, bls. 1-56, er nú hluti af Lbs 3373 8vo.

Upphaf

Fjalars læt eg dælu dýr / draums úr nausti skríða …

Skrifaraklausa

Rímurnar eru endaðar þann 23ða desember 1837, vitnar J. Jónsson.

Athugasemd

Tólf rímur.

Efnisorð
2
Hemingsrímur
Titill í handriti

Rímur af Hemingi Áslákssyni, ortar af Magnýsi Jónssyni

Upphaf

Fingra drifta fyrir slóð / Fjölnis minni kera …

Skrifaraklausa

Rímurnar endaðar þann 26da desember 1837, vitnar J. Jónsson.

Athugasemd

Sex rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
ii + 80 + ii blöð (156 mm x 98 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; skrifari:

Jóhannes Jónsson

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 1837.
Aðföng

Lbs 3372-3402 8vo, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð , sendi Háskóla Íslands handritin 1952 , en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar. Sum handritin eru með nafni séra Helga Sigurðssonar á Melum, en handrit úr fórum hans voru send börnum hans vestur um haf að honum látnum 1889.

Sbr. Lbs 3623-3630 4to.

Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. aukabindi, bls. 127.

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 20. nóvember 2018.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn