Ýmsar rímur. Skrifaðar upp af Jóhannesi Kjartanssyni á Hlaðseyri við Patreksfjörð árið 1907-9-11 (1r).
„Rímur af Ambrósíusi og Rósamundu, kveðnar af Magnúsi Magnússyni á Laugum“
„Borgari einn sem brast ei féð, / búinn gæfu standi …“
„Skrifaðar upp haustið 1907 á Geirseyri við Patreksfjörð (21v).“
Fimm rímur.
„Rímur af Surt og Brúsa, ortar af Hallbirni B. Bergmann og Hermanni Jónssyni, báðum á Flatey árið 1877“
„Í Sinlandi öðlingar / áður fjáðir ríktu …“
Tvær rímur.
„Rímur af Tíódel og kvinnu hans, ortar af Magnúsi Magnússyni í Magnússkógum“
„Milding einum makt var léð, / mærð þar að eg hneigi …“
Fjórar rímur.
„Rímur af Sigurði turnara, ortar af Magnúsi Magnússyni í Magnússkógum“
„Kjalars ljósa kera straum / kann eg fram að bera …“
Sex rímur.
„Rímur af Gesti Bárðarsyni, ortar af Lýð Jónssyni skáldi“
„Ræðu kvarði mæla má, / minna sagnir heykjum …“
Fimm rímur.
„Rímur af Haka og Hagbarði, ortar af Hannesi prest Bjarnasyni, þær fyrri 5, og Gísla Konráðssyni, aðrar 5“
„Minn svo hlýna mætti hér / mærðar frosinn akur …“
Tíu rímur.
„Rímur af Helga Hundingsbana, ortar af Gísla Konráðssyni“
„Sagan getur Sigmundar, / síst er hræðast mundi …“
Sjö rímur.
„Rímur af Flórentínu fögru, ortar af Gísla Konráðssyni“
„Þannig víkur efni að / er viðbætir köllum …“
Fimm rímur.
„Rímur af Loðvík og Súlímu, ortar af Gísla Konráðssyni í Flatey“
„Á, mér fer að leiðast líf, / langar finnast tíðir …“
„Endaðar 14. desember 1907 (158v).“
Fimm rímur.
„Rímur af Fedor og Efemíu, ortar af Dannebrogsmanni Sigfúsi Jónssyni árið 1840“
„Hrærist tunga, hressist fér, / hreyfist kraftur anda …“
Sjö rímur.
„Ríma af einni bóndakonu, ort af Magnúsi Jónssyni á Laugum í Sælingsdal“
„Dvalins læt ég dælu jór, / dragast tals úr sandi …“
105 erindi. Í handritinu er ríman eignuð Magnúsi Jónssyni en samkvæmt Rímnatali er hún talin vera eftir Jón Þorsteinsson.
„Ríma af enskum stúdent“
„Ansa eg þannig ykkur fljóð, / sem aftakið eg þegi …“
156 erindi.
„Jannesarríma, ort af Guðmundi Bergþórssyni“
„Verður Herjans vara bjór, / við skáldamæli kenndur …“
86 erindi.
„Rímur af Flórusi kóngi og sonum hans, ortar af Hákoni Hákonarsyni í Brokey á Breiðafirði, árið 1850“
„Þið Einherjar, bregðið blund, / búist nú til farar …“
„Endaðar 17. janúar 1908 á Hlaðseyri við Patreksfjörð (240v).“
Tíu rímar.
„Rímur af Tryggva Karlssyni, ortar af Jóni Einarssyni í Miðfirði (Skárastaða-Jóni)“
„Er það sögu upphaf fyrst, / einn buðlingur réði …“
Tólf rímur.
„Ríma af einum bónda, ort af Ólafi Eyjólfssyni“
„Skorður klæða Herjans hér / hefjið ræðu blóma …“
100 erindi.
„Rímur af Ajax frækna, ortar af Ásmundi Gíslasyni 1868“
„Kærust Iðunn, kenndu mér / að koma saman stöku …“
„Endað að skrifa 10. Februaris árið 1911 af Jóhannesi Kjartanssyni, á Grænhól á Barðaströnd (318v).“
Sex rímur.
Pappír.
Innbundið.
Keypt í febrúar 1937 af Guðmundi Benediktssyni.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 79-80.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 26. apríl 2017.