Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 2404 8vo

Sögubók ; Ísland, 1805

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-60v)
Hálfdanar saga gamla
Titill í handriti

Sagan af Hálfdáni gamla og sonum hans

2 (61r-100v)
Hrómundar saga Greipssonar
Titill í handriti

Hér hefir söguna af Hrómundi Greipssyni

3 (101r-104v)
Sigurðar þáttur slefu
Titill í handriti

þáttur frá Sigurði konungi slefu syni Gunnhildar

4 (104v-118v)
Grænlendinga þáttur
Titill í handriti

Af Einari Sokkasyni eður Grænlendinga þáttur

5 (119r-127v)
Hauks þáttur hábrókar
Titill í handriti

Söguþáttur af Hauki hábrók og Vígharði

6 (128r-164r)
Þorsteins saga Geirnefjufóstra
Titill í handriti

Sagan af Þorsteini Geirnefjufóstra

7 (164r-177r)
Skálda saga
Titill í handriti

Skálda saga Haralds konungs hárfagra

Efnisorð
8 (177v-182r)
Styrbjarnar þáttur Svíakappa
Titill í handriti

Hér hefur þátt af Styrbirni enum sterka Svíakappa

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1: DET ØRHOLMSKE / INTERESSENTSKAB (starfaði 1805-1832) (1r-44v). Annað vatnsmerki er á blöðum 29-30 og 39-40.

Vatnsmerki 2: PRO PATRIA / tvöfaldur hringur með GR - undir kórónu. I HUMMEN (Veluwa Hollandi) (45r-100v, 119-126 og 151-166). Annað vatnsmerki er á blöðum 88-89.

Vatnsmerki 3: Óþekkt vatnsmerki / 1810 er á blöðum: (29-30, 39-40, 88-89, 167-171 og 173-174 ).

Blaðfjöldi
182 blöð (204 mm x 166 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er um 135-140 mm x 75-80 mm.
  • Línufjöldi er 19-20.

Ástand

Ástand handrits við komu: lélegt.

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Gísli Konráðsson

Skreytingar

Skreyttir stafir og titlar á stöku stað.

Band

Band frá því um 1805-1832 (174 mm x 99 mm x 30 mm).

Bókaspjöld úr tré klædd brúnu skinni.

Límmiði á fremra spjaldi.

Áslaug Jónsdóttir gerði við í febrúar 1968.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1805?
Ferill

Eigandi handrits: Egill Gottskálksson á Völlum (fremra spjaldblað)

Aðföng

Lbs 2404-2413 8vo, keypt 1934 af Jónasi Egilssyni á Völlum, og mun flest vera úr eigu föður hans og jafnvel föðurföður (Gottskálks Egilssonar), sem nöfn sýna á mörgum handritanna.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu, 15. nóvember 2012 ; Sigrún Guðjónsdóttir aðlagaði skráningu, 10. júní 2010 ; Handritaskrá, 3. b. ; Sagnanet 26. september 2000.
Viðgerðarsaga

Athugað 2000.

Myndað í desember 2012.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í desember 2012 .

Lýsigögn
×

Lýsigögn