„Hænsa-Þóris rímur kveðnar af sál. hr. lögmanni Sveini Sölvasyni og sr. Jóni Þorlákssyni.“
„Negla vil ég Norðra knör / af naumum efnum saman …“
„Hænsa-Þóris rímur kveðnar af sál. hr. lögmanni Sveini Sölvasyni og sr. Jóni Þorlákssyni. Hefur sá fyrri hætt þar sem þetta merki x stendur seint í þeirri 5tu rímu, en hinn kveðið þaðan út til enda. Uppskrifaðar eftir skáldanna eiginhandarriti og þar við samanbornar 1788.“
Á blaði 71v stendur: „Skrifaðar af Halldóri, fyrrum á Yxnafelli í Eyjafirði.“ Í handritaskrá er þetta sagt rangt.
„Rímuþáttur af Þorsteini skelk, kveðinn af studioso Jóni Jónssyni á Grund og eftir hans eiginhandarriti uppskrifaðar þann 13da Martii 1783.“
„Eikinskjalda mjöður mér / mest er valdan þrái …“
Með hendi Halldórs Jónssonar á Öxnafelli.
„Diktuðu sögur og dæmin fróð / dýrir meistarar forðum …“
„Skrifaðar í hasti árið 1791 og endaðar þann 17da Martii þess ... af Jóni Ólafssyni.“
„Að muna umliðið mætti þjóð / mikið hugfest vera …“
„10. 9br 1804.“
Með hendi Þorsteins Gíslasonar á Stokkahlöðum.
„Ríma af einum fornuftugum biðli“
„Góma kvörn að gamni mínu / galar mætu fljóði í vil …“
Ríma þessi er í handritum ýmist eignuð Jóni Jónssyni á Jökli í Eyjafirði eða Jóni Þorsteinssyni úr Fjörðum. Í ættbók Bjarna Jóhannessonar frá Sellandi er hún þó sögð vera eftir Jón Þórarinsson frá Skógum.
„Ríma af Jannesi Karlssyni“
„Verður Herjans vara bjór / við skáldmæli kenndur …“
„Tvær rímur af ráðugum kaupmanni og óforsjálum munk“
„Suðra lsainn siglu hund / set ég úr þagnar nausti …“
Vantar aftan við.
„Af skógabrennu Ölkofra“
„Gagravilla gengur treg / Geiguðar með þorsta teig …“
Pappír.
Skinnband með tréspjöldum. Tala þrædd gegnum spjald og band að framanverðu.
Þrjú laus viðgerð blöð úr spjaldi fylgja með í sérstöku umslagi. Tvö blöð dags. 28.4.1827 og 3.5.1827 sem J. K. W. Johnson Defjord Kjøbstad skrifar undir (heimspekilegar vangaveltur). Eitt blað með texta úr Ólafs sögu Tryggvasonar (?).
Ísland, 1783-1804.
Lbs 1282-1399 8vo, eru úr safni Jónatans Þorlákssonar á Þórðarstöðum; keypt í júlí 1906.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 2. bindi, bls. 260-261.
Halldóra Kristinsdóttir skráði 6. október 2016.