„Rímur af Hermann illa“
„Valur Óma fljúgi frá / fasta þagnar landi …“
„Þessar rímur eru skrifaðar eftir röngu examplare og endaðar d. 6ta apr. 1815 af J. Ólafssyni (38r).“
Ellefu rímur. Skrifað af I. Ólafssyni.
„Rímur af Kiða-Þorbirni“
„Gunnblinds hani gef þig til / að gala lítinn tíma …“
Fjórar rímur.
„Rímur af Auðun íslenska“
„Konungs ása kera flóð / krafti meður sínum …“
Fjórar rímur.
„Rímur af Polistator og Möndulþvara“
„Mig vill þrátt um minnis reit / mærðar fundin dvína …“
Níu rímur. Með hendi Þorsteins Gíslasonar á Stokkahlöðum.
„Rímur af þeim bræðrum Theophilo og Crispino“
„Viðris fálki varla ör hinn vængja hrjáði / flútur nú af hyggju heiði …“
Þrjár rímur. Eiginhandarrit.
„Sönn historia eylands Phinæ í hvört engelskt skip hraktist og brotnaði, komust á land 4 kvennmenn og einn karlmaður, fjölgaði af þeim á 80 árum 1789 sálir, snúið í ljóð af Páli Bjarnasyni“
„Vindólfs snekkjan vill á skrið / víkja máls af sandi …“
Þrjár rímur. Aftan við eru nokkrir bragarhættir, með sömu hendi.
„Rímur af Þorgilsi Orrabeinsfóstra“
„Í fyrsta sinni ferju Járs / fram skal hrundið minni …“
Sextán rímur.
Pappír.
I. Ólafsson
Á blaði 193v stendur: „Þessa bók á með réttu Hallgrímur“
Lbs 1282-1399 8vo eru úr safni Jónatans Þorlákssonar á Þórðarstöðum; keypt í júlímánuði 1906.