„Lofðung nokkur Logi hét / letrið mér svo téði …“
18 rímur. Í handritinu eru rímurnar eignaðar Árna Böðvarssyni.
Pappír.
Ísland, um 1880.
Á aftasta blaði, verso-hlið, er eigandayfirlýsing Magnúsar Einarssonar. Ef til vill hefur hann skrifað handritið.
Lbs 961-1234 8vo, er keypt 1904 af dr. Jóni Þorkelssyni þjóðskjalaverði.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 2. bindi, bls. 190.
Halldóra Kristinsdóttir skráði 15. nóvember 2016.