Þýðandi : Halldór Brynjólfsson
Þar í þýðing Halldórs Brynjólfssonar biskups á ritgerð eftir Pierre du Moulin. Með hendi svipaðri mjög síra Ásgeirs Bjarnasonar í Ögurþingum.
Pappír.
Skinnband.
Á aftara saurblaði verso er faðirvorið ritað með óæfðri hendi og undir er nafnið „Jómfrú Matta Ásgeirsdóttir“. Á recto-síðu sama blaðs eru nokkur karlmannsnöfn, m.a. Ólafur Jónsson, Jón Jónsson, Markús og Páll, rituð með sömu hendi.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 163.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 22. september 2021.