Skráningarfærsla handrits

Lbs 56 8vo

Kóngsbréfa- og tilskipanasafn 1541-1711, III. bindi ; Ísland, 1710-1720

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Kóngsbréf og tilskipanir
Athugasemd

Kóngsbréfa- og tilskipanasafn 1541-1711 og viðaukið 1731-1741, ásamt nokkrum réttarbótum Noregskonunga.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
vi + 331 blað (157 mm x 98 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd (að mestu):

Handritið er að mestu með hendi eins af skrifurum Árna Magnússonar prófessors, Þórðar Þórðarsonar.

Þó bregður þar fyrir öðrum höndum, t.d. Árna Magnússonar.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1710-1720 (að mestu).
Ferill

Lbs 54-63 8vo eru úr safni Hannesar Finnssonar biskups.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 31. mars 2020.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 15.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn