„Rímur af Kára Kárasyni, ortar af Bjarna Jónssyni (skálda)“
„Endað og illa klórað anno 1890 á Mikaelsmessu.“
Í eftirmála segist Andrés hafa skrifað rímurnar eftir handriti Björns Jónssonar í Bjarnareyjum, sem skrifað hafi verið 15. nóvember 1867. Hafi handritið víða verið ólesandi og rangskrifað og hafi hann því ort upp og inn í.
„Jallmanns rímur, ortar af Guðmundi sál. Bergþórssyni“
„Rímur þessar eru upp páraðar eftir handriti, sem skrifað hafði verið í Dalasýslu anno 1801 af Gunnlaugi nokkrum Guðmundssyni, og er þetta nú þriðja handrit frá skáldsins eigin hendi, en af mér lagfært, á þeim stöðum sem ég hefi fundið rangt vera. Lesarinn forlát ófæra skrift, endaðar 6. dag febrúar anno 1891 af Andrési blinda.“
Kveðskapartíningur, m.a. Þórnaldarþula (?), Engildiktur og Balthasarkvæði.
Pappír.
Tréspjöld með bláköflóttu lérefti.
Lbs 4981-4983 4to. Gjöf 9. ágúst 1979 frá Halldóri Kristjánssyni frá Kirkjubóli. Samanber Lbs 4399-4418 8vo.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 11. janúar 2019 ; úr óprentaðri handritaskrá.