Skráningarfærsla handrits

Lbs 4978 4to

Dagbók ; Ísland, 1881-1887

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Dagbók Einars Gíslasonar
Athugasemd

Dagbók 1. janúar 1881 - 21. maí 1881.

Hér eru einnig eftirrit bréfa til Bjarna Bjarnasonar á Gróustöðum (1), Eggerts Magnússonar á Hamri (ásamt frásögn af átökum í kaupstaðaferð í Flatey) (2) og Jónasar Guðmundssonar í Rauðsdal (1), sem og eftirrit ýmissa embættisgerða, samþykktar fyrir bændaverslun á Breiðafirði 1882 og áskrifendanöfn félagsmanna; einnig frumvarp til laga um Búnaðarfélag Barðstrendinga.

Með yngri hendi eru rituð með blýanti ýmis minnisatriði, uppköst að greinum og Úr dagbók ungrar stúlku á ferð yfir Atlantshaf um Evrópu.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
95 blöð (206 mm x 167 mm).
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; skrifarar:

Einar Gíslason

Óþekktur skrifari

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 1881-1887 og á fyrri hluta 20. aldar.
Aðföng

Lbs 4972-4978 4to. Afhent 28. júlí 1982 og 3. ágúst 1982 og 27. júlí 1984 af Lárusi Scheving Ólafssyni, nema Lbs 4973 4to, sem er keypt 17. ágúst 1982 af Hertu A. Dollison. Lárus kvaðst hafa fengið handritin í bókaskiptum frá Vestur-Íslendingum, meðal annars Davíð Björnssyni í Winnipeg. Handritin eru yfirleitt merkt með nafni hans.

Sbr. Lbs 4381-4390 8vo.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 8. janúar 2019 ; úr óprentaðri handritaskrá.

Lýsigögn
×

Lýsigögn