„Horæ Succisicæ eður Sparitímar nokkra umþenkinga stílaðar eftir vorri skyldu, við Guð vorn, náunga og oss sjálfa. Fyrst skrifaðar í engelsku tungumáli af Joseph Henshau, læriföður h. skriftar. Síðan útlagðar á þýsku af einum sem kallar sig Iafnitann. Og nú eftir þýsku útleggingunni snúnar á íslensku, af þeim sem vill í sérhverju sem er kristilegt, finnast sínum samkristnum eftir fremsta mætti jafnan þénandi.“
Pappír.
Björn Björnsson hefur skrifað á fremra skjólblað v: „Hér eru fögur heilræði / hvörgi til, so ég viti, / utan þessi: eigandi / að þeim verði Finnbogi.“ Er þá ferillinn auðrakinn.
Á fremra spjald utanvert er þrykkt: A. Petersen 1777.
Lbs 4962-4963 4to. Gjöf 16. apríl 1982 frá systkinunum Benedikt Þórðarsyni, Sigríði Þórðardóttur, Sigurrós Guðbjörgu Þórðardóttur og Valdísi Þórðardóttur. Móðir þeirra var Guðrún á Klúku í Steingrímsfirði, Finnbogadóttir á Klúku, Björnssonar á Klúku, Björnssonar prests í Tröllatungu Hjálmarssonar.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 3. janúar 2019 ; úr óprentaðri handritaskrá.