Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 4827 4to

Sögubók ; Ísland, 1801-1856

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-8v)
Bergbúa þáttur
Titill í handriti

Bergbúa þáttur [m. vísnaskýringum]

Skrifaraklausa

Skrifað eftir gömlum sundurrotnum blöðum. E[inar] (8v)

2 (9r-15r)
Hauks þáttur hábrókar
Titill í handriti

Söguþáttur af Hauki hábrók og Vígharði

3 (15v-24v)
Atla saga Ótryggssonar
Titill í handriti

Söguþáttur af Atla Ótryggssyni

4 (25r-62v)
Bjarnar saga Hítdælakappa
Titill í handriti

Saga Bjarnar Hítdælakappa

5 (63r-90r)
Kormáks saga
Titill í handriti

Hér ritast Kormáks saga

Athugasemd

Orðamunur neðanmáls

6 (91r-106v)
Rímur af Skáld-Helga
Titill í handriti

Rímur af Skáld-Helga sögu

Skrifaraklausa

Rímur þessar hef ég í fyrstu ritað eftir nýlegu fínt og smátt skrifuðu exempl., af þeim mér léðu austan af landi … Annars munu rímur þessar vera orðnar stórum afbakaðar ærið víða [skrifari fjallar hér um forrit sitt og uppskrift sína] (106v)

Athugasemd

7 rímur

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Vatnsmerki

Blaðfjöldi
i + 106 + i blöð (188 mm x 153 mm) Auð blöð: 46v og 47r
Ástand
Á aftara saurblað hefur verið límdur blaðleppur úr prentuðu riti
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Einar Bjarnason á Starrastöðum

Skreytingar

Upphafsstafir á stöku stað stórir og ögn skreyttir

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Með handriti liggja brot úr Þóris þætti hasts (1 blað), Hálfs sögu og Hálfsrekka (5 blöð), Hrólfs sögu kraka (1 blað) og brot úr hátíðabænum (4 blöð)

Band

Skinnband með tréspjöldum, þrykkt

Innsigli

Á blaðsnepli við aftara spjald eru leifar af innsigli

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1801-1856?]
Ferill

Eigendur handrits: Tómas Pálsson [ef til vill sonur síra Páls eða að minnsta kosti niðji hans, en þeir bjuggu á Skagaströnd (samanber handritaskrá)] (fremra saurblað v-hlið), síra Páll Tómasson á Knappsstöðum í Stíflu (1r, 24v, 62v, 90v90v), Þuríður Lange og Jakob Jósefsson Árbakka á Skagaströnd (samanber handritaskrá)

Aðföng

Þór Magnússon þjóðminjavörður, afhenti, 23. desember 1977

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 14. ágúst 2009 ; Handritaskrá, 4. aukab. ; Sagnanet 17. febrúar 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999

gömul viðgerð

Lýsigögn
×

Lýsigögn