„Rímur af Agnari Hróarssyni“
„Hér skal brjóta Biblinds raun / Beslu æsir glóða / og heim flytja öl þaðan / alda sonum bjóða ...“
16 rímur.
„Rímur af Nýja Englands byggingu“
„Vindólfs ferjan vildi á skrið / víkja máls af sandi / farminn tals um fræða mið / flytja af heyrnarlandi ...“
3 rímur.
„Rímur af Otúel“
„Fjölnis læt ég flæðar gamm ...“
8 rímur.
„Rímur af Olgeiri Danska ortar af Guðmundi Bergþórssyni Anno 1680.“
„Snekkja Þundar snör til fars / snúi róms úr landi ...“
60 rímur.
„Eitt ævintýri um einn Íslending“
„Jörmungrunda hvíta hrafn / heyrði ég gala ...“
127 erindi.
Pappír
Skinnand.
Nöfn: Sólveig Pálsdóttir, S. Jónsson, Pétur (276v). Jón Einarsson (síðara spjaldblað).
Á blaði 1r (sem virðist með yngri hendi en handritið sjálft) stendur, að Pétur Einarsson á Ey í Borgarfirði eigi bókina 12. apríl 1827.
Blöð 162-165 eru úr umslögum merktum séra Snorra Björnssyni á Húsafelli.
Lbs 4815-4816 4to, keypt 15. júní 1977 í fornbókaversluninni Klausturhólum, en þangað komið frá Damms Antikvarat í Osló.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 26. ágúst 2020.
Handritaskrá, 4. aukabindi, bls. 136.