„Stutt ágrip af Þúsund og einum degi. Fyrst af persíanísku á frönsku útlagðar af herra Petis de la Croix meðlim þess konunglega Franska Academíes en nú eftir margra ósk og beiðni á danska tungu settar með kongl. majestatis allra náðugasta Privilegió á íslensku útlagðar anno 1777 af prestinum séra Sigfúsi Sigurðssyni og nú eftir hans eiginhandarriti uppskrifaðar að Melum við Hrútafjörð árið 1810.“
Eiginhandarrit séra Sigfúsar mun vera Lbs 588 4to. Fyrri hluti handritsins er að mestu með hendi séra Ólafs Sívertsen í Flatey en síðari hlutinn með hendi föður hans, Sigurðar Sigurðassonar á Melum í Hrútafirði, síðar að Núpi í Haukadal.
Pappír
Óþekktur
Þórdís Ólafsdóttir í Rauðseyjum átti bókina (titilblað r).
Í bandi er eitt blað úr 8. rímu af Otúel eftir Guðmund Bergþórsson, sendibréfaslitur til Bjarna Jóhannessonar lóss í Bjarneyjum og reikningur frá Flateyjarverslun.
Keypt 1. júní 1964 af Klemens Þorleifssyni barnakennara í Reykjavík.
Arnheiður Steinþórsdóttir frumskráði 14. ágúst 2020.
Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. aukabindi, bls. 99-100.