„Rímur af Ásmnundi kappabana. Ortar veturinn 1916 af Jóhannesi Kjartanssyni á Grænhól á Barðaströnd og síðasta ríman ort 1934 af Kára Sigurði Sólmundarsyni á Njálsgötu 14 í Reykjavík.“
„Buðla nefna milding má / mærðar fyrst í línum …“
„Rímurnar eru skrifaðar eftir uppkasti höfundarins. Endað að skrifa rímurnar 30.4.1934 af Kára S. Sólmundarsyni á Njarðargötu 14 í Reykjavík (46v).“
Átta rímur.
„Rímur af Þorleifi jarlsskáldi. Fyrri partur ortur 1917 af Jóhannesi Kjartanssyni á Grænhól á Barðaströnd og seinni partur ortur 1934 af Kára Sigurði Sólmundarsyni á Njálsgötu 14 í Reykjavík.“
„Fuglinn Óma flökta má / fram að sögu efni …“
„Rímurnar skrifaðar upp eftir blýantsuppkasti höfundar, hann orti ekki meira af þeim. Bæði rímnauppköstin fékk ég að láni hjá syni höfundar, ég orti við rímurnar að gamni mínu. Endað að skrifa rímurnar 11.6.1934 af Kára S. Sólmundarsyni á Njálsgötu 14 í Reykjavík (77v).“
Fimm rímur.
„Fjarðaríma ort af Kjartani Sveinssyni vélstjóra á Skagaströnd.“
„Nú ákvarða Niflheimströll / að niðjum jarðar slyngum …“
103 erindi.
„Ferðapistill ortur af sama.“
„Um öldujórinn ég vil þylja / er ýta þrjá og falda bil …“
49 erindi.
„Formannavísur, ortar 1913 af sama.“
„Frí við neyðar fárlegt vés / fáki breiðum siglir trés …“
11 erindi.
Pappír.
Lbs 3991-3993 4to, keypt af Kára Sólmundarsyni. Sbr. Lbs 649-650 fol., Lbs 741-744 fol., Lbs 3726-3810 4to og Lbs 3466-3481 8vo.