„Rímur af Hring og Tryggva“
„Fljótt úr gjörir fræða kór, / fljúga Óðins svanur …“
„Endað að skrifa rímurnar 12.2.1931 af Kára S. Sólmundarsyni, Njálsgötu 14 (56r).“
Átta rímur.
„Rímur af Þorgrími Ólafssyni“
„Brátt eg rímu byrja skal, / burtu hrynda svefni …“
„Rímurnar ortar í Miðhúsum, Akraneshrepp innri. Endað að skrifa rímurnar 16.2.31 af Kára S. Sólmundarsyni, Njálsg. 14 (70r).“
Tvær rímur.
„Rímur af Albertó sterka og Ásmundi kóngssyni“
„Dverga fleyi eg nú ýti / út úr sagna kró …“
„Endað að skrifa rímurnar 28. febrúar 1931, á Njálsgötu 14, af Kára S. Sólmundarsyni (106v).“
Fjórar rímur.
„Ríma um Íslandskappa“
„Garpar forðum sögur sanna, / sverðin reyndu björt og stinn …“
„Endað að skrifa rímuna, 3.3.1931 af Kára Sólmundarsyni (114r).“
79 erindi.
„Jurtarríma“
„Nú skal dverga byrla bjór / bauga ungri línu …“
„Endað að skrifa rímuna 7.3.1931 af Kára Sólmundars. Njálsgötu 14 (131v).“
204 erindi.
„Dýranafnavísur, ortar í Húsavík við Steingrímsfjörð“
„Nöfn spendýra núna má / nefna þessi óðar skrá …“
„Endað að skrifa vísurnar 12.3.1931 af Kára S. Sólmundarsyni (133v).“
21 erindi.
„Ljóðabréf, ort í Snóksdal 1898 til Gunnlaugs Gunnlaugssonar, frá Hömrum í Haukadal, þá á Hvanneyri, Andakíl, nú á Rauðarárstíg 9, Reykjavík“
„Sæll blessaður sértu naðaviður, / fári og mæðu frá snúinn …“
„Endað að skrifa vísurnar 13.3.31 af K.S.S. (136v)“
43 erindi.
Pappír.
Lbs 3991-3993 4to, keypt af Kára Sólmundarsyni. Sbr. Lbs 649-650 fol., Lbs 741-744 fol., Lbs 3726-3810 4to og Lbs 3466-3481 8vo.