„Sagan af Ambrosius og Rósamundu“
„Sagan af Helenu vænu og sonum hennar“
„Enduð sagan um kvöldið kl. hálf 9, 6. marts 1880, af Jóni Björnssyni á 62. ári þá á Randver[s]stöðum (27r)“
„Sagan af Ásmundi Sebbafóstra“
„Enduð sagan um kvöldið klukkan hálf 10, 15. marts 1880, af Jóni Björnssyni á Randversstöðum, á 62ru aldurs ári. Þá var besta hláka og sumar autt (36r)“
„Sagan af Gríshildi þolinmóðu“
„Enduð á föstudaginn langa 1880 af Jóni Björnssyni á 62. ári, Randversstöðum (44v)“
„Sagan af Bæring fagra riddar Valtarasyni“
„Enduð sagan á sumardaginn fyrsta 1880 af Jóni Björnssyni á 62ru ári á Randversstöðum (54v)“
„Sagan af Þorgils orrabeins-fóstra að öðru nafni Flóamanna saga“
„Enduð sagan 9. júlí 1880 af Jóni Björnssyni á 62ru ári á Randversstöðum (70r)“
„Sagan af Hálfdáni Brönufóstra“
„Enduð 28. október 1880 af Jóni Björnssyni á Randversstöðum og vantaði þá 13 daga í 62 ár (86r)“
„Sagan af Birni Hítdælakappa“
„Enduð sagan 26. október 1881 af Jóni Björnssyni á Randversstöðum í Breiðdal, þá nærri því 60 og 3 ára (162v)“
„Sagan af Hallfreði vandræðaskáldi“
„Enduð sagan 14. janúarii 1882 af Jóni Björnssyni á segstugasta og fjórða ári, þá á Randversstöðum í Breiðdal. Þá var klukkan 5 og 40 m. gengin til 6 um morguninn (180v)“
„Sagan af Hektori og köppum hans“
„Enduð sagan 15. apríl 1882 af Jóni Björnssyni á 64. ári á Randversstöðum (199r)“
„Fljótsdæla eður sagan af Droplaugarsonum“
Síðari hluta Droplaugarsona sögu er hér aukið við Fljótsdælu
„Enduð sagan þann 15. apríl 1883 af Jóni Björnssyni á 65. ári þá verandi á Skjögrastöðum (248v)“
Tvennskonar vélunninn pappír, án vatnsmerkja.
Gömul blaðsíðumerking 1-496 (1r-250v), blaðsíður 251-254 tvítaldar (128r-129v).
Ástand handrits við komu: Sæmilegt.
Blek mjög laust og útkámað.
Jón Björnsson á Randversstöðum í Breiðdal
Mannamynd: 112r, tæplega heilsíðumynd, litur fjólublár, á miðri mynd er skrifað: Á jólanóttina árið 1880.
Manna- og skipamynd: 142v, hálfsíðumynd, litur fjólublár.
Víða andlitsmyndir í tengslum við griporð, einkum aftan til.
Víða andlitsmyndir af sögupersónum neðst á síðum, einkum aftan til.
Víða eru fugla-, dýra-, skipa- og blómamyndir neðst á síðum.
Skrautstafir og litaðir upphafsstafir á stöku stað.
Upphafsstafir stórir og ögn skreyttir.
Á stöku stað er texti skrifaður með fjólubláum lit.
Fremra saurblað r-hlið: Sögur og rímur [með annarri hendi].
Band frá því um 1880-1883 (215 mm x 166 mm x 41 mm).
Ólitað skinnband með tréspjöldum, kjölur skrautþrykktur. Skinn afar skítugt.Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri og bókaútgefandi á Akureyri, gaf, 3. október 1958.
Athugað 1998.
Myndað í desember 2012.
Myndað fyrir handritavef í desember 2012 .