Rímnabók samaskrifuð á Ökrum í Mýrasýslu að mestu leyti af Árna B.s. þeim til gamans er iðka vilja en eigandi bókarinnar er Ingveldur Gísladóttir. (1r)
„Ríma af Þorsteini skelk kveðin á kvöldvöku haustið 1744 af A. B.“
„Forðum hafa skáldin skýr / skemmtan framið hrönnum …“
„Skrifuð á kvöldvöku að Ökrum 1744 af ÁBöðvarssyni.“
Ein ríma.
„Fjölnirs læt ég flæðar gamm / í flegðu veðri skríða …“
„Þessar Otúels rímur eru skrifaðar á Ökrum og endaðar þann 22 Januarii anno 1753 af ÁBsyni.“
Átta rímur.
„Rímur af Víglundi væna kveðnar af Ásgrími Magnússyni á Höfða í Norðurlandi.“
„Skortir síst þau skemmtan lér / skáldin hýru kvenna …“
„Skrifaðar á Ökrum og endaðar þann 21. Octobris 1755 af Á. B.syni eftir röngu og rotnu ecamplare, lagfærðar og completeraðar 1761.“
15 rímur.
„Rímur af Úlfari sterka og Önundi fríða“
„Fuglar Sigtýrs fljúgi þið enn / fram af Herjans höllu …“
„Þessar rímur eru skrifaðar á Ökrum og endaðar þann 12. Decembris anno 1757 af ÁBsyni.“
16. rímur. Fyrri átta rímurnar eru eftir Þorlák en seinni átta eftir Árna.
„Rímur af Haraldi Hringsbana“
„Haukar Óma hraði för / Herjans út af rönnum …“
„Þessar rímur eru skrifaðar á Ökrum og endaðar af ÁBsyni þann 25. Januarii anno 1752.“
12 rímur.
„Rímur af Þorsteini uxafót“
„Herjans bið ég haukarnir / hingað fljúga nái …“
„Skrifaðar á Ökrum ef svo má kalla af ÁBöðvarssyni. / Þesar rímur eru skrifaðar á Ökrum af ÁBsyni.“
Tíu rímur.
„Rímur af þeim miklu köppum Trójaborgar, Priamo kóngi, Hectore skerska og öðrum kóngsins Priami sonum kveðnar af Jóni Jónssyni á Berunesi við Reyðarfjörð í Múlasýslu austur anno 1682.“
„Fróðir meistarar fyrri í heim / fólki skemmtu víða …“
„Þessar rímur eru skrifaðar á Ökrum og endaðar þann 13. Augusti anno 1755 af ÁBsyni.“
30 rímur.
„Rímur af Flóres og Leó hvörjar fimmtán eru kveðnar af Húsafells-Bjarna en þær síðustu níu af sr. Hallgrími sál. Péturssyni.“
„Diktuðu sögur og Sónar vess / sagna meistarar forðum …“
„Skrifað ef svo má kallast frá miðri 4ðu rímu til enda af Þorkeli Sigurðssyni anno 1756.“
24 rímur. 15 fyrstu eftir Bjarna Jónsson og síðustu 9 eftir séra Hallgrím Pétursson.
Pappír.
Bókin hefur verið gerð fyrir síðari konu Árna Böðvarssonar, Ingveldi Gísladóttur (sbr. titilsíðu). Hún er felld saman úr átta kverum með hendi Árna, en mikinn hluta síðasta kversins og titilsíðu hefur Þorkell Sigurðsson ritað og að líkindum látið binda. Síðar hefur bókin komist í eigu Halldóru Þórarinsdóttur, konu Grímólfs Snorrasonar á Jörfa (bl. 1v-2r, sem upphaflega hafa verið límd saman í eitt titilblað, sbr. einnig bl. 60v og 199v).
Nöfn í handritinu: H. Sigurðsson (fremra skjólblað, r); Sigurður Helgason, Sívertsen (bl. 2v); Guðmundur Friðriksson, Björn Gíslason, Páll Grímólfsson (bl. 26v); Ásmundur Þorláksson (bl. 92r). Nafnavísa (bl. 137r): Árni, Hjalti, Auðunn, Steinn, / Oddur, Gvendur, Torfi, Jón, / Grímur, Högni, Gestur, Sveinn, / Gunnar, Skeggi, Björn, Símon.
Sbr. Lbs 3372-3402 8vo.
Lbs 3623-3630 4to, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð, sendi Háskóla Íslands handritin 1952, en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar.
Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).