Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 3505 4to

Sögubók ; Ísland, 1698

Titilsíða

Fróðlig sagnabók innihaldandi eftirtektaverðar historiur nokkra nafnfrægra íslenskra manna, hvörjar forðum tíð þessa lands innbyggjarar hafa uppteiknað og eftir sig látið. Nú að nýju uppskrifaðar anno 1698 eftir þeim orðréttustu gömlu bókum er menn meina fyllstar og sannferðugastar vera. Fróðleiksgjörnum lesara til iðkunar og íhugunar en þeim til lærdóms og lystisemi sem þesskonar skemmtun hlýða nenna. (1r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-180v)
Njáls saga
Titill í handriti

Hér byrjar Njáls sögu

Upphaf

Mörður hét maður er kallaður var gígja …

Niðurlag

… son Brennu-Flosa hét Kolbeinn, er ágætastur hefur verið einhvör í þeirri ætt.

Baktitill

Og ljúkum vér þar Njáls sögu.

2 (182r-196r)
Hungurvaka
Titill í handriti

Hér byrjast Hungurvaka

Upphaf

Bækling þennan kalla ég hungurvöku …

Niðurlag

… bæði við óhlýðna menn og rangláta.

Efnisorð
3 (196v-253r)
Þorláks saga helga
Titill í handriti

Þorlákur hinn helgi sjötti biskup í Skálholti

Upphaf

Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Innocentius páfi hinn þriðji …

Niðurlag

… lofandi Guð og hinn sæla Þorlák biskup.

Athugasemd

C-gerð á blöðum 230r-253r

Efnisorð
4 (253v-257v)
Páls saga biskups
Titill í handriti

Frásögn hin sérlegasta af Páli Jónssyni sjöunda Skálholtsbiskupi

Upphaf

Páll var son Jóns göfugasta manns Loftssonar …

Niðurlag

… að enginn maður áður á Íslandi hefur vorðið af sínum frændum jafngöfugur.

Athugasemd

Brot

Efnisorð
5 (258r-310r)
Lárentíus saga biskups
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Laurentio Hólabiskupi

Upphaf

Í þann tíma er almennilegri kristni Guðs kristni stýrði postulegur faðir Urbanus hinn fjórði …

Niðurlag

… en allir menn máttu sjá hvað leið megin hans.

Efnisorð
6 (311r-373v)
Guðmundar saga biskups
Titill í handriti

Hér hefst saga af Guðmundi biskup Arasyni góða hinum fimmta að Hólum

Upphaf

Þorgeir Hallason bjó undir Hvassafelli í Eyjafirði …

Niðurlag

… og tveir synir Þórðar Laufæsings, Hákon og Hildibrandur.

Efnisorð
7 (376r-378v)
Konungatal
Titill í handriti

Hér byrjar dateruð nöfn þeirra kónga sem ríkt hafa yfir Noreg, Danmörk, Englandi og Skotlandi, eftir sem af krónikum bevísast kann og gömlum annálum

Upphaf

Anno Christi 846 fæddur Haraldur hárfagri …

Niðurlag

… gjörðist Englands kóngur næst eftir mág sinn.

8 (378v-381v)
Biskupatal á Íslandi
Titill í handriti

Registur biskupanna sem á Íslandi verið hafa

Upphaf

Ísleifur Gissursson (son Gissurar hvíta) var hinn fyrsti biskup í Skálholti …

Niðurlag

… kom að utan og settist á stólinn. Deyði 17.

9 (381v-383v)
Lénsmannatal á Íslandi
Titill í handriti

Registur lénshöfðingjanna sem yfir Íslandi stjórnað hafa síðan það kom fyrst undir Norvegskrónu

Upphaf

Gissur Þorvaldsson var gjörður að jarli af kóng Hákoni Hákonarsyni …

Niðurlag

… Christian Müller amtsmann.

10 (383v-386v)
Lögmannatal
Titill í handriti

Registur þeirra lögmanna sem á Íslandi verið hafa síðan það fyrst byggðist og lögmenn fyrst gjörðust með sérhvörs árs dato eftir því sem í annálunum fundist hefur

Upphaf

Hrafn Hængsson var fyrstur lögmaður á Íslandi …

Athugasemd

Á blaði 386 hefur önnur hönd bætt við upplýsingum um lögmenn seint á 17. öld og til 1800.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Vatnsmerki.

Blaðfjöldi
iv + 386 + iv blöð (192 mm x 156 mm). Auð blöð: 1, 181, 310v, 374 og 375.
Tölusetning blaða
Handrit blaðmerkt með blýanti.
Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er 165 mm x 125 mm.

Línufjöldi er 29-33.

Griporð.

Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu (fyrir utan viðauka á blaði 386 sem eru með annarri hendi).

Óþekktur skrifari en hönd hans er að finna á handritinu Add. 4865 sem varðveitt er í British Museum, blöð 289r-338v.

Skreytingar

Litskreytt titilsíða, litir rauður, blár og gulur.

Stafir og titlar víða skreyttir.

Bókahnútur: 373v.

Samsvarandi myndir af Agli Skallagrímssyni, Gretti Ásmundarsyni og Guðmundi ríka Eyjólfssyni er að finna í AM 426 fol. , með myndatexta skrifuðum af Magnúsi Ketilssyni. Höfundur allra fjögurra myndanna er að öllum líkindum Hjalti Þorsteinsson í Vatnsfirði (sbr. Agnete Loth, Opuscula III , bls. 94-95).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á fremra saurblaði 3r: Þessi bók er af sögusafni Boga Benediktssonar 1815 og af manuscriptio, in catalogo merkt undir númer 5 sub littera A. (efst) Dono dignissimi domini Skulonis Magni Dalensium toparchæ, librum nactus sum B[ogi] Benedicti (neðst).

Band

Samtímaband (210 mm x 165 mm x 72 mm).

Brúnt skinnband á tréspjöldum með látunsspennum.

Límmiði á fremra spjaldi.

Fylgigögn

Þessu handriti fylgir lituð mynd af Njáli sem geymd er í sérstakri möppu.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1698.
Ferill

Jón úr Vör keypti handritið af Sigríði Einarsdóttur ekkju Jóns Sigurðssonar

Úr safni Boga Benediktssonar (fremra saurblað 3r).

Bogi fékk handritið að gjöf frá Skúla Magnússyni samanber latínutextann á saurblaði 3r.

Sbr. Lbs 633 fol.

Aðföng

Jón úr Vör seldi, ágúst 1956.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir bætti við skráningu, 13. janúar 2015 ; Halldóra Kristinsdóttir fór yfir skráningu 18. janúar 2013 ; Sigríður Hjördís Jörundsdóttir undirbjó til myndatöku, 4. ágúst 2010 ; Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 1. febrúar 2010 ; Örn Hrafnkelsson breytti skráningu fyrir myndvinnslu, 15. nóvember 2009 ; Handritaskrá, 2. aukab. ; Sagnanet 12. október 2000.
Viðgerðarsaga

Athugað 2000.

Myndir af handritinu
123 spóla negativ 35 mm ; án spólu Sagnabók

Myndað fyrir handritavef í ágúst 2010.

Notaskrá

Titill: , Opuscula III
Umfang: XXIX
Lýsigögn
×

Lýsigögn