Rímnabók eftir Guðmund Bergþórsson og Snorra Björnsson II. Skrifuð á Höfða í Dýrafirði 1882-1889.
„Gamalt renni Gillings vín / góms um landið mýra …“
„Endaðar 21. febr. 1882, sem var fyrsti þriðjudagur í Góu, á Höfða í Dýrafirði.“
19 rímur.
„Rímur af Jarlmanni og Hermanni, ortar 1677 af Guðmundi Bergþórssyni.“
„Fundings renni ferjan snör / fram af landi sagnar …“
„Aftan á rímum þeim sem eftir er skrifað, stóð þetta: "Þessar rímur eru endaðar þann 5. Oktobris 1801 af Gunnlaugi Guðmundssyni", en þessar eru endaðar á Höfða í Dýrafirði, á Gvendardag, 16. marts 1882, af Sighvati Grímssyni.“
18 rímur.
„Rímur af Otúel, ortar 1681 af Guðmundi Bergþórssyni.“
„Fjölnis læt ég flæðar gamm / í flegðu veðri skríða …“
„Þessar rímur hefi ég skrifað eftir sama handriti og næstu rímur á undan, og var þannig ritað aftan við þær: "Þessar rímur eru skrifaðar eftir hendi sál. Teits Jónssonar á Grímsstöðum, en hann skrifaði eftir skáldsins eigin hendi, en hvað af mér abakað vera kann, lesi í málið góðfúsi lesari, G. G.son." Það er Gunnlaugur Guðmundsson, sem bókina hefir skrifað, á henni eru 1. Jarlmanns rímur, 2. Otúels rímur, 3. Byrjun á Kappakvæði Guðmundar Bergþórssonar, 4. Um Segulsteininn og Adamas, 5. Vísa Bjarna Jónssonar á Knerri, um hrossakjötsát, 6. Rímur af Sigurgarði og Valbrandi, 7. Ballarár-annáll. Endaðar, 21. marts, þriðjudaginn fyrsta í Einmánuði, 1882 á Höfða í Dýrafirði, af Sighvati Grímssyni.“
Átta rímur.
„Rímur af Sigurgarði frækna og Valbrandi svikara ortar 1687 af Guðmundi Bergþórssyni.“
„Hyrjar vindur hleypa skal / Heiðólfs duggu minni …“
„Endaðar 5. apr. 1882.“
18 rímur.
„Ævintýrið Jóhönnuraunir, ortar af síra Snorra Björnssyni á Húsafelli.“
„Uppheims rósar lagar lind / læt ég mengi svala …“
„Skrifaðar eftir Viðeyjarútgáfunni 1829, þann 18.-21. Decembr. 1883, á Höfða í Dýrafirði.“
Átta rímur.
„Rímur af Sigurði snarfara, kveðnar af síra Snorra Björnssyni, presti fyrst á Stað í Aðalvík og síðan á Húsafelli. Skrifaðar eftir Hrappseyjarútgáfunni 1779.“
„Fjölnis rjóma ég renna læt / um Rögnis síl í boðnar strokk …“
„Byrjaðar 7. en endaðar 16. janúar, 1884, á Höfða í Dýrafirði, af Sighvati Grímss: Borgfirðingi.“
13 rímur.
„Eitt æfintýri “
„Jörmungrunda hvíta hrafna / heyrða ég gala …“
„Endað á Höfða þ. 23. maí, sem var laugardagur fyrir hvítasunnu, 1885, af S. Gr. B. “
127 erindi.
„Rímur af Arnljóti Upplendingakappa, ortar af séra Snorra Björnssyni á Húsafelli.“
„Bylur Fenju etur enn / Atríðs haukum báðum …“
„Endaðar 12. júlí 1885 á Höfða, af S. Gr. Borgf.“
11 rímur.
„Rímur af Hálfdani Brönufóstra, ortar af síra Snorra Björnssyni á Húsafelli.“
„Mín þó fljúgi mála ör / mér af sagnar boga …“
„Aðrar Brönu rímur miklu eldri eru til í safni Árna Magnússonar í Kaupm.h. eignaðar Rögnvaldi blindað. Það eru þær sem séra Snorri nefnir í síðasta mansöngnum (6. vísu) í þessum rímum. Eiginhandarrit síra Snorra af rímum þessum er enn til í handritasafni Bókmenntafélagsins í Kaupm.h. nr. 187 4to. Þær eru og til í sama safni, nr. 600 8vo, vantar aftan af, ritaðar með ýmsum höndum, og enn eru þær til á Landsbókasafninu í Reykjavík nr. 128 8vo, og 345 4to. - Byrjaðar þann 7. apríl og endaðar 16. sama mánaðar 1889 á Höfða í Dýrafirði. Sighvatur Grímsson Borgfirðingur.“
17 rímur.
Pappír.
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur
Lbs 2265-2387 4to eru meaðl handrita þeirra sem safnið keypti af Sighvati Gr. Borgfirðingi, með samningi 20. júní 1906 og afhent voru að fullu eftir andlát hans, 1930.