Rímnaflokkar eftir Árna Böðvarsson I. Skrifaðir á Höfða í Dýrafirði 1884-1885. Sighvatur Grímsson Borgfirðingur.
„Rímur af Hrólfi kraka“
„Suðra bát við góma göng / geymir mála skorðan …“
19 rímur.
„Rímur af Agnari konungi Hróarssyni ortar 1776 af Árna Böðvarssyni á Ökrum“
„Nú skal brjóta Biflinds rann / Beslu æsir glóða …“
„Skrifaðar þann 23. til 28. janúar 1884, eftir Hrappseyjarútgáfunni, á Höfða í Dýrafirði af S. Gr. B. “
16 rímur.
„Rímur af Helga hvassa, Hræreki konungi, Ívari víðfaðma, Haraldi hilditönn og Brávallarbardaga, ortar 1760 af Árna Böðvarssyni á Ökrum, skrifaðar hér eftir eiginhandarriti skáldsins, í arkarbroti, með orðréttum eigin skýringum hans yfir rímurnar , á íslensku og latínu.“
„Tvíblinds hallar turna frí / taka meyjar dansa …“
„Endaðar á Höfða 29. janúar 1885 af Sighvati Borgfirðingi.“
Tíu rímur.
„Rímur af Grími Jarlssyni kveðnar anno 1741 af Árna Böðvarssyni, skrifaðar hér eftir skáldsins eiginhandarriti.“
„Fálkinn Óma flýgur enn / fram að höllu Grana …“
„Endaðar á kyndilmessu 2. febr. 1885 á Höfða í Dýrafirði, en höfundurinn hefir skrifað handrit það sem eftir er skrifað, 1762.“
Fjórar rímur.
„Rímur af Droplaugarsonum ortar 1762 af Árna Böðvarssyni.“
„Margir áður menn um frón / mynduðu kvæða letur …“
„Endaðar þann 20. febrúar, sem var síðasti föstudagur í Þorra, 1885 á Höfða í Dýrafirði, en eiginhandrit skáldsins, sem eftir var ritaðað, er endað á Ökrum, á síðasta vetrardag, 21. Aprilis 1762 sama árið og þær voru ortar.“
22 rímur.
„Rímur af Haraldi Hringsbana, ortar 1746 af Árna Böðvarssyni á Ökrum, skrifaðar hér eftir skáldsins eiginhandriti í arkarbroti, á sömu bók og undanfarandi þrennir rímnaflokkar.“
„Haukur Óma hraði för / Herjans út af rönnum …“
12 rímur.
„Langloka. Á. Böðvarss. kvað 1772 til herra lögmanns Sv. Sölvasonar.“
„Leyfi lagið óðar / ljóst fyrir ömmu móða …“
„Rímur af Ingvari víðförla og Sveini syni hans, ortar 1773 af Árna Böðvarssyni á Ökrum.“
„Langt er síðan silfurker / Sóns á borði stóðu …“
„Endaðar á Höfða í Dýrafirði, mánudaginn næsta fyrir hvítasunnu, sem var 18. maí 1885, af Sighvati Grímss. Borgfirðingi.“
Tíu rímur.
„Rímur af Þorsteini uxafæti, ortar 1755 af Árna Böðvarssyni á Ökrum.“
„Herjans bið ég haukarnir / hingað fljúga nái …“
„Skrifaðar 25.-.27. apr. 1890.“
Tíu rímur.
„Ríma af Þorsteini skelk, brot.“
„Forðum hafa skáldin skýr / skemmtan framið hrönnum …“
„Skrifað á Höfða í Dýrafirði, 27. apríl, sem var sá þriðji sunnudagur eftir páska, en fyrsti sunnudagur í sumri, 1890 af Sighvati Grímssyni Borgfirðingi.“
74 erindi.
Pappír.
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur
Lbs 2265-2387 4to eru meaðl handrita þeirra sem safnið keypti af Sighvati Gr. Borgfirðingi, með samningi 20. júní 1906 og afhent voru að fullu eftir andlát hans, 1930.