Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 1429 4to

Rímnasafn ; Ísland, 1860-1870

Titilsíða

Rímur af Skáld-Helga eignaðar síra Tómasi Snorrasyni. Skrifaðar af Geir Vigfússyni (1r). Rímur af Króka-Ref ortar af þjóðskáldinu Hallgrími sáluga Péturssyni (19r). Rímur af Ormi Stórólfssyni ortar af Eiríki Pálssyni 1848. Ritaðar upp að nýju í apríl 1865. Geir Vigfússyni. (60r). Rímur af Hallfreði Óttarssyni vandræðaskáldi ortar af Árna skáldi Böðvarssyni ritaðar að nýju veturinn 1868 í október af Geir Vigfússyni (79r). Rímur af Atla Ótryggssyni ortar af Guðna Sigurðssyni Eyfriðingi. Skrifaðar af Geir Vigfússyni (123r). Fjórir rímnaflokkar. I.I. Af Auðun Íslending. II. Illuga kerlingarfífli. III. Gunnari Keldugnúpsfífli IV. Birni Hítdælakappa. Skrifaðir að nýju af Geir Vigfússyni (137r). Rímur af fóstbræðrunum Þorgeiri Hávarðssyni og Þormóði Bessasyni Kolbrúnarskáldi ortar af Árna skáldi Böðvarssyni. Uppskrifaðar að nýju veturinn 1868 af Geir Vigfússyni (223r).

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-18v)
Rímur af Skáld-Helga
Upphaf

Fyrrum átti eg fræðabrunn / fékk eg af skemmtan ljósa …

Athugasemd

7 rímur.

Efnisorð
2 (19r-59v)
Rímur af Króka-Ref
Upphaf

Hér skal Frosta flæðar hind / fram úr nausti renna …

Niðurlag

… falli bragur ljóða.

Athugasemd

13 rímur.

Efnisorð
3 (60r-78r)
Rímur af Ormi Stórólfssyni
Upphaf

Víki mæðan vitrum frá / viðum daga lóna …

Niðurlag

… sagan endar þannin.

Athugasemd

6 rímur.

Efnisorð
4 (79r-122r)
Rímur af Hallfreði vandræðaskáldi
Upphaf

Kom þú lystug hingað Hlökk / Herjans meyjan rjóða …

Niðurlag

… hending endar lína.

Athugasemd

12 rímur.

Efnisorð
5 (123r-136v)
Rímur af Atla Ótryggssyni
Upphaf

Sigtýrs horna sjóinn hér / sendi eg Íslands niðjum …

Athugasemd

4 rímur.

Efnisorð
6 (137r-147r)
Rímur af Auðuni Íslending
Upphaf

Skal ei rétt að Skírnis fley / skemmti hærukyljum …

Niðurlag

… lið sig friðar styður við.

Athugasemd

3 rímur.

Efnisorð
7 (147r-165v)
Rímur af Illuga tagldarbana
Upphaf

Skáldin hafa skilningsgóð / skýr um íslands byggðir …

Niðurlag

… sé honum lof og heiður.

Athugasemd

11 rímur.

Efnisorð
8 (165v-188r)
Rímur af Gunnari Keldugnúpsfífli
Upphaf

Herjans svanir hlaupið þó / Hnikars fljótt af ranni …

Niðurlag

… frétta rúið gallast hér.

Athugasemd

7 rímur.

Efnisorð
9 (188r-222v)
Rímur af Birni Hítdælakappa
Upphaf

Langar mig við ljóðadís / litla stund að tala …

Niðurlag

… þarmeð styttist bræði.

Athugasemd

12 rímur.

Efnisorð
10 (223r-290v)
Fóstbræðrarímur
Upphaf

Fjalars hef eg / ferju nú í smíðum …

Athugasemd

22 rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 290 + iii blöð (201 mm x 169 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; skrifari:

Geir Vigfússon

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland um 1860-1870.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir frumskráði 5. júní 2013; Handritaskrá, bindi 1.
Viðgerðarsaga

Athugað fyrir myndatöku júní 2013.

Myndað í júní 2013.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í júní 2013.

Lýsigögn
×

Lýsigögn