Uppkast til forsagna um brúðlaupssiðu hér á landi helst þegar efnaðir menn eiga í hlut, er meira vilja við hafa svo sem um brúðgumareið, brúðargang, sætaskipan og rétta tölu. Um ýmisleg minni sem leyfilegt er að brúka, með tilgjörðum ræðum og vísna söngvum fyrir þeim. Um aðskiljanlega leika og skemmtanir er hafast kunna bæði í brúðlaupum og öðrum veislum á Íslandi. Eins um ýmisar aðrar serimóníur sem brúka má í slíkum samkvæmum. Samantekin eftir viðteknum sæmilegum landsins venjum, að fornu og nýju; víða lagfærð eftir alþjóðlegu siðgæði og jafnframt aukin með slíkum kurteislegum siðbótum annarra þjóða, fornum eður nýjum, sem vel geta viðgengist hér á Íslandi. (1r)
Pappír.
5 kver.
Eindálka.
Leturflötur er ca. 180-190 mm x 122-127 mm.
Línufjöldi er 37-42.
Texti titilsíðu er bikarlaga (1r).
Minni og meiri athugasemdir á spássíum nær allra blaðsíðna.
Á blaði 1r (titilsíðu) er með dökku bleki efst í vinstra horni skrifað einni rún nafn Eggerts Ólafssonar og beint á móti á fremra saurblaði v er nafn Eggerts skrifað á venjulegan hátt með rúnum og til þess notaður blýantur. Svipar þetta til þess að ráðning rúnarinnar á titilsíðu hafi verið skrifuð á saurblaðið.
Pappaspjöld klædd brún- og gulyrjóttum pappír með marmaramynstri, skinn á kili, rexín á hornum, gylling á kili. (210 mm x 170 mm x 12 mm)
Á kili: „Brudkaups Sidir“.
Tekið úr bandi fyrir myndun.
Á fremra spjaldblað v er límdur miði með þessari athugasemd Jóns Árnasonar: „Þessi brúðkaups siðabók Eggerts lögmanns Ólafssonar með hans eiginhendi er gefin mér 7. janúar 1857 af húsfrú Þórunni Magnúsdóttur Stephensen á Ytrahólmi. Jón Árnason.“
Athugað fyrir myndatöku 13. október 2010 Ritað inn að kili - ómögulegt að mynda nema tekið sé í sundur.
Myndað í október 2010.
Myndað fyrir handritavef í október 2010.