Kongsbréf, höfuðsmannaskikkanir og fleira 1450 til 1696.
Í handritið vantar nú allmikið (samanber tbl). Upprunalegt titilblað mjög skaddað er fest framan við bókina, og stendur á því: „... aitz all ... Bréf og befalningar með Höfuðsmönnum hingað í Ísland sendum. Skrifuð af Jóni Þorlákssyni að Berufirði á Berufjarðarströnd í Austfjörðum, og er bókin hans eign. Anno Domini 16 ...“
Pappír.
Fremst er yngra titilblað.
Aukin af Páli stúd. Pálssyni það, sem vantaði og fyllt varð.
Fremst láu laus viðkvæm og máð blöð pökkuð inn í prentuð blöð, í fyrri pakkanum 22 blöð, þar á meðal registur, og í þeim seinni 11 blöð. Blöðin eru nú í sér umslagi hjá handritinu merktu Lbs 71 4to b.
Ísland, um 1670-1696.
Var í eigu Jóns Þorlákssonar.
Úr safni Steingríms biskups.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 19. nóvember 2019 ;
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls.137.