Skráningarfærsla handrits

Lbs 40 4to

Predikanir og nokkrar bænir ; Ísland, 1640-1670

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Predikanir á helgidögum frá páskum til aðventu ásamt nokkurum bænum
Athugasemd

Á predikunum eru tvær rithendur, við blað 145 skiptir um rithönd og taka þá við allt aðrar predikanir.

Bænir á blöðum 229-238 og virðast blöð 237-238 vera með hendi Guðbrands biskups Þorlákssonar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
iii + 238 blöð (180 mm x 150 mm).
Skrifarar og skrift
Fjórar hendur; þekktur skrifari:

Guðbrandur Þorláksson að því virðist

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Titilsíða með yngri hendi, fremst er einnig yngra efnisyfirlit yfir ræðuefni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ísland, að mestu um 1640 - 1670.

Aðföng
Lbs 36-40 4to úr safni Steingríms biskups.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 22. október 2019 ;

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls. 124.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn