Þ.á.m. ætt Björns Gíslasonar að Ytri-Á (með hendi síra Magnúsar Jósepssonar 1880, þá á Kvíabekk), ætt frá Jónatan Þorfinnssyni frá Brenniborg, Hjaltalínsætt, Thorlaciusætt vestra, ættartölur með hendi Geirs Vigfússonar á Akureyri, uppkast að landbúnaðarlögum eftir Sighvat Árnason alþingismann í Eyvindarholti (1889), grafskrift yfir Pétur Andrés Maack verslunarstjóra í Reykjavík (d. 1841).
Ísland, á 18. og 19. öld.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 6.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 2. júlí 2015.