Viðbætir við ættbók Ólafs Snóksdalíns með hendi síra Sigurðar Br. Sívertsens og Bjarna Guðmundsonar ættfræðings, er þá (1880) átti heima í Kirkjuvogi.
Ísland, á 19. öld.
Bjarni Guðmundsson fékk bókina að gjöf 1880 frá síra Sigurði Br. Sívertsen, sem aðrar ættbækur hans.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 4.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 30. júní 2015.