Framan við fyrra bindið er registur um mannanöfn með hendi síra Brynjólfs Sigurðssonar að Útskálum með fáeinum íaukum annarra.
Ísland, á 19. öld.
Jón Espólín hefur sent síra Brynjólfi að Útskálum, skólabróður sínum og fornvini, þetta rit sitt að gjöf, en frá síra Sigurði Br. Sívertsen hefur Bjarni Guðmundsson ættfræðingur fengið það (sbr. titilblað) og frá honum hefur það komist í eigu Jóns Péturssonar dómstjóra.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 3.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. júní 2015.