Eiginhandarrit. Á innfestum eyðublöðum og um handritið sjálft eru íaukar með hendi Boga Benediktssonar á Staðarfelli nokkurir, en mest með hendi Jóns dómsstjóra Péturssonar og dr. Hannesar Þorsteinssonar, en talsvert einnig með hendi Jósafats Jónassonar (Steins Dofra), Jóhanns ættfræðings Kristjánssonar og jafnvel fleiri. Framan við hvert bindi er titilblað og efnisinntak með hendi Páls Pálssonar stúdents. Framan við 1. bindi er fyrri hluti stúdentatals Magnúsar Gíslasonar stúdents (með hendi Jóns Péturssonar).
Ísland, um 1834-1837.
Handritið er að erfðum komið frá Boga Benediktssyni að Staðarfelli.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 2.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. júní 2015.