Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 235 fol.

Sturlunga saga ; Ísland, 1681-1682

Titilsíða

Sú stóra, merkilega og margfróða Sturlunga saga með sínum öllum tíu þáttum eður höfuðpörtum eftir þeim elstu og réttustu originalum sem til hafa fengist skjallega. Uppskrifuð að tilsjón og forlagi virðulegs höfðingja Magnúsar Jónssonar að Vigur á Ísafjarðardjúpi. Sub anno gratiæ MDCLXXXIII

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-250v)
Sturlunga saga
Titill í handriti

Hér byrjar Sturlunga sögu og skrifast hér hinn fyrsti þáttur hennar

Skrifaraklausa

MDCLXXXII

Athugasemd

(1r) er titilsíða

2 (251r-297r)
Árna saga biskups
Titill í handriti

Nú eftir fylgir hinn síðasti þáttur af Íslendingum sem er sagan af Árna biskupi og hvörnin bændur urðu þrengdir frá sínum óðulum með bannfæringum og ýmislegum (atburðum) tilferlum. Hvað um þann tíma hefur til borið hér á landi og Noregi. Rafn Oddsson siglir og fleiri aðrir. Hann andaðist í Noregi

Skrifaraklausa

Aftan við (296v): Enduð anno 1682. Þann 11. martii. Jón Þórðarson m.e.h.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð (innrauð mynd í vatnsmerkjagrunni) // Ekkert mótmerki (1-46, 54-104 og 113-297).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Horn án axlarólar (innrauð mynd í vatnsmerkjagrunni) // Ekkert mótmerki (52).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki með borða (innrauð mynd í vatnsmerkjagrunni) // Ekkert mótmerki (107 og 109).

Blaðfjöldi
i + 297 + i blöð (309 mm x 192 mm) Auð blöð: 1v og 297v.
Tölusetning blaða

Yngri blaðsíðumerking 1-591.

Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er um 255-262 mm x 135-150 mm.

Línufjöldi er 36-39.

Griporð.
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Jón Þórðarson

Skreytingar

Litskreytt titilsíða, að hluta rauðrituð.

Litir í handriti rauður, blár, gulur, grænn og fjólurauður.

Víða er strikað undir texta með rauðu.

Víða skrautstafir, litaðir á blöðum: 2r og 34r.

Bókahnútur: 250v.

Band

Skinnband með tréspjöldum, þrykkt og litað fjólurautt.

Kjölur þrykktur og upphleyptur.

Fylgigögn
Lítill miði er límdur fremst í handriti, ritaður af Guðmundi Þorlákssyni, dagsettur 22. nóvember 1899. Á honum eru upplýsingar um handritið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1681-1682.
Ferill

Eigandi handrits: Magnús Jónsson í Vigur (1r, 296v).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Jón Kristinn Einarsson bætti við skráningu 4. janúar 2021; Sigrún Guðjónsdóttir aðlagaði skráningu, 7. nóvember 2009 ; Handritaskrá, 1. b. ; Sagnanet 7. apríl 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999.

gömul viðgerð á jöðrum.

Lýsigögn
×

Lýsigögn