Með hendi síra Jóns Erlendssonar í Villingaholti og viðaukum með hendi síra Hannesar Björnssonar í Saurbæ o.fl. Ævisögur Ögmundar biskups Pálssonar, Gissurar Einarssonar, Marteins Einarssonar, Gísla Jónssonar, Odds Einarssonar, Gísla Oddssonar, Jóns Arasonar, Ólafs Hjaltasonar, Loðins lepps, Daða Guðmundssonar, Hannesar Eggertssonar, Guðna Jónssonar, Páls Jónssonar á Skarði, Sturlu Þórðarsonar og Orms lögmanns Sturlusonar, Guðbrands biskups Þorlákssonar, Teits Þorleifssonar (og Sveinsstaðareið), Þorleifs Árnasonar og Björns Þorleifssonar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Mótmerki: Fangamark CC (á víð og dreif á blöðum 1-94).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Kringla (?) // Ekkert mótmerki (37).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 2 // Mótmerki: Fangamark IC (45-46).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki með borða (DORAK) Anno 1660 // Ekkert mótmerki (95, 97, 106).
Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Skjaldarmerki með hornum, blómum og bókstafnum C // Ekkert mótmerki (143, 144, 145 151, 153, 155, 157, 160-161).
Gömul blaðsíðumerking.
Blaðmerkt fyrir myndatöku.
Eindálka.
Leturflötur er um 263-265 mm x 150-155 mm.
Línufjöldi er 33-36.
Hannes Björnsson (viðaukar með hans hendi)
Band frá því eftir 1850 (310 mm x 205 mm x 42 mm).
Pappaspjöld með lérefti. Saurblöð tilheyra nýju bandi.
Páll Pálsson stúdent batt inn.
Titilsíða með hendi Páls Pálssonar á saurblaði 2r.
Fastur seðill frá Steingrími Jónssyni á saurblaði 1v.
Úr handritasafni Steingríms Jónssonar biskups. 1704 hefur hún verið í eign Sigurðar Sigurðssonar eldra. Mun hún vera afrit af ættartölubók síra Þórðar Jónssonar í Hítardal, sem Brynjólfur biskup Sveinsson fékk léða til að afrita, og mundi þá þessi bók vera stofninn í ættartölubók Jóns Ólafssonar á Lambavatni.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar voru keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Jón Kristinn Einarsson bætti við skráningu 20. september 2018; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 2017.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , bls. 25.