Þar á meðal: Frá Gísla lögmanni Hákonarsyni, Gísla Oddssyni biskupi til Jóns Gissurarsonar skólameistara, Th. J. til sama, Ragnheiði Jónsdóttur til síra Sigurðar í Holti bróður síns, Árna Magnússyni prófessor til sama. Til Finns Jónssonar síðar biskups frá Magnúsi Gíslasyni amtmanni (3 bréf), Nikolási Erasmussyni í Mávahlíð, Sveini Sölvasyni (2 bréf), Gísla biskupi Magnússyni, Bjarna Pálssyni landlækni, síra Jóni Bergssyni á Kálfafelli, Einari Bjarnasyni og Brynjólfi Jónssyni (hreppstjórum), Erlendi sýslumanni Ólafssyni, frá Halldóri Magnússyni presti í Árbæ til síra Hannesar Halldórssonar í Reykholti. Konungsbréf um okursölu á brennivíni og tóbaki (3. júní 1746) og konungsbréf (14. apríl 1759) um kaup fyrir innheimtu lögmannstolla og þinglestur kaup-, veð- og gjafabréf. Frá Teiti Ólafssyni (skólapilti) til síra Jóns Bjarnasonar á Ballará til sama frá Oddi Þorvarðssyni (síðar presti á Reynivöllum). Til Magnúsar Gíslasonar amtmanns frá Einari Bjarnasyni og Brynjólfi Jónssyni (hreppstjórum í Biskupstungum), til Gunnars prests Pálssonar frá síra Þorsteini Péturssyni á Staðarbakka. Frá Ólafi kammersekretera Ólafssyni til síra Árna bróður síns í Gufudal, frá Herm. Agstrup kaupmanni til sama. Til Hannesar biskups frá síra Kolbeini Þorsteinssyni í Miðdal, Jóni prófasti Steingrímssyni (2 bréf), Jóni prófasti Jónssyni á Mýrum (2 bréf), Sveini Pálssyni. Til Árna biskups Þórarinssonar frá síra Guðmundi Högnasyni. Til Þorkels stiftamtmanns Fjeldsteds frá Skúla Magnússyni landfógeta, frá Thodal stiftamtmanni. Umsókn Sveins læknis Pálssonar um Klarupske Legat, ásamt meðmælum. Frá Hannesi biskupi til síra Halldórs bróður síns. Frá Sigríði Þorsteinsdóttur á Móeiðarhvoli (til Hannesar biskups?). Til prestanna í Árnesþingi frá jarðamats commissariis St. Stephensen og A. Sivertsen.
Afskrift af Ny kgl. Saml. 681 b 4to (sbr. Lbs 1439 4to)
Þingsvitni tekið á Hjaltlandi 1299, um landskuldir Papeyjar þar (afskr. Hannesar biskups)
Pappír.
Úr handritasafni Steingríms Jónssonar biskups.
Handritið er óskráð stafrænt.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , bls. 19-21.