Páll Pálsson, efnisskrár.
Á aftasta blaði, versó síðu stendur: „Ingvöldur Jóhannesdóttir á þettað kver þó að hún kunni ei að lesa á því.“ Á blaði 1v er nafn Ingveldar einni og þar hefur Jón Árnason skrifað: „Þessi kvæði eru mér sögð kveðin af séra Þorsteini Jónssyni á Dvergasteini. Jón Borgfirðingur fékk þau hjá ofannefndri konu Ingveldi austur í Skriðdal, en lét mig fá þau 29. júní 1860.“ Erfitt er að fullyrða hver Ingveldur var en mögulega er það sú Ingveldur Jóhannesdóttir sem fædd var árið 1823 og dó 1907. Hún var vinnukona og húsfreyja víða í Suður-Múlasýslu en fluttist til Vesturheims árið 1879.
Úr safni Jón Árnason, bókavarðar.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.