„Rímur af Hákoni norska kveðnar af Jóhannesi Jónssyni bóndasyni á Syðra Skörðugili“
„Rímur af Jóhanni Blakk kveðnar af Gísla Sigurðssyni á Klungurbrekku“
„Ríma af Ormi Stórólfssyni sterka kveðnar af skólapilti Guðmundi Torfasyni 1819“
„Rímur af Ingibjörgu kóngsdóttur, kveðnar af séra Jóni Guðmundssyni í Reykjadal“
„Ein ríma kölluð Fuglamál“
„Rímur af Vémundi og Valda, kveðnar af Lýð borgfirðska Jónssyni árið 1828“
„Sendibréf [í ljóðum] tilskrifað Saða Ormssyni, ort af Hallvarði Hallssyni í Höfn á Ströndum árið 1744“
„Sagan af Drauma-Jóni“
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.