Skráningarfærsla handrits

JS 608 4to

Sannur kristindómur ; Ísland, 1700-1800

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Sannur kristindómur
Höfundur
Athugasemd

Tvær bækur (def.). Rithendi á fyrri bókinni svipar til Sigurðar lögmanns Björnssonar; á hinni síðari er unglegri hönd.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
[153 blöð] + 522 blaðsíður (203 mm x 160 mm).
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

Sigurður Björnsson

Óþekktur skrifari

Band

Skinnbindi.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 18. öld.
Ferill

Úr safni Jóns Árnasonar bókavarðar.

Handritið hefur verið í eigu Jóns Sigurðssonar á Steinum, en af skinnbindingu má ráða, að það hafi binda látið Brynjólfur Þórðarsson Thorlacius á Hlíðarenda 1718, og er það líklega upprunalega með handritin.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir fór yfir skráningu, 3. ágúst 2012 ; Íris Alda Ísleifsdóttir frumskráði, 16. júní 2011 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2011.
Lýsigögn
×

Lýsigögn