Skráningarfærsla handrits

JS 464 4to

Bréfabók og ritgerðir ; Ísland, 1700-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Bréfabók síra Sigurðar Stefánssonar 1781-9
Titill í handriti

Publique Brefa Copiubók prófasts í Snæfells og Hnappadals sýslum byrjuð í October mánudi 1781

Athugasemd

Einnig eftir að hann varð biskup.

Eignhandarrit, 47 blöð.

Efnisorð
2
Samtíningur um peninga umbreiting og ástand á Íslandi frá 1815
Titill í handriti

Samtíningur um peninga umbreyting og ástand á Íslandi frá 20ta mars 1815 til - útdregið af Dr. Juris M. Stephensens Klausturpósti árin 1818-19-20.

Athugasemd

Ártalið til vantar í titil en er 1821 samkvæmt handritaskrá.

14 blöð með hendi síra Jóns Konráðssonar

Efnisorð
3
Ritgerð um kálgarða og matjurtir
Titill í handriti

Kálgarðar

Athugasemd

20 blöð, skrifað á sendibréf til Magnúsar Gíslasonar amtmanns og Ólafs Stefánssonar stiftamtmanns.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
81 skrifað blað ( 201 mm x 158 mm).
Skrifarar og skrift
Þrjár hendur ; Þekktir skrifarar:

Sigurður Stefánsson

Jón Konráðsson

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 18. og 19. öld.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 579.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 19. september 2019.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Höfundur: Þorvaldur Thoroddsen
Titill: Landfræðissaga Íslands
Umfang: I-IV
Lýsigögn
×

Lýsigögn