„Rithöfundatal á Íslandi… saman hefur sett Jón J. Borgfirðingur.“
Stofninn er Fræðimanntal Einars á Mælifelli, með viðaukum um síðari fræðimenn 4 bindi (I og II, 1-3)
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.